Maí 2012

maí 2012

(Sleppa dagatali)
Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3
fimmtudagur
4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25
föstudagur
26 27 28 29 30 31

Lausar stöður

SÍ auglýsir eftirfarandi stöður:


1. fagott
Hæfnispróf verður haldið mánudaginn 23. janúar 2012.

Einleiksverk:
1.  Mozart  Fagottkonsert í B dúr,K.191,  1. og 2. þáttur
2.  Saint-Saëns  Fagott sónata op. 168, 1. og 2. þáttur
Hljómsveitarpartar verða aðgengilegir þátttakendum að minnsta kosti tveimur vikum fyrir prófdag. Jafnframt kunna umsækjendur að verða beðnir um að taka þátt í samleik í hljóðfærahópi.

Umsóknir
Umsóknarfrestur er til 23. desember 2011. Umsóknir, ásamt ferilskrá og fylgiskjölum, skulu hafa borist:
Sinfóníuhljómsveit Íslands,
Hörpu, Austurbakka 2,
101 Reykjavík
Dómnefnd mun meta hverjum verður boðið til þátttöku og verður þeim sent boð skömmu eftir að umsóknarfrestur er liðinn. Umsóknarfrestur kann að verða framlengdur. Öllum umsóknum verður svarað. Umsókn og hæfnispróf gilda í eitt ár.

Um starfið
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags SÍ og fjármálaráðherra. Gert er ráð fyrir að ráðið verði í stöðuna í upphafi starfsárs 2012-2013.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá starfsmannastjóra (kristin@sinfonia.is) í síma 897 2515.

---------------------------------------------------------------------------

 

 



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica