Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Tónleikar

hillary_hahn_listi

Hilary snýr aftur 9.2.2012 19:30 Harpa

Hin magnþrungna sinfónía nr. 11 eftir Sjostakovitsj hefur verið kölluð „kvikmyndatónlist án kvikmyndarinnar.“ Hún lýsir því þegar Rússakeisari sigaði hermönnum sínum á mótmælendur í Pétursborg árið 1905. Bandaríska fiðlustjarnan, Hilary Hahn sló í gegn með Sinfóníuhljómsveitinni í fyrra og lét strax í ljós ósk sína að leika í Hörpu. Hún hefur leikið hinn sólríka fiðlukonsert Mozarts víða um heim. Claude Vivier þótti eitt efnilegasta tónskáld sinnar kynslóðar þegar hann var myrtur á hrottafenginn hátt 1983. Stjórnandinn Peter Oundjian lærði á fiðlu hjá Itzhak Perlman og var fyrsti fiðluleikari Tókýó-strengjakvartettsins um fjórtán ára skeið. Hann er nú aðalstjórnandi Skosku þjóðarhljómsveitarinnar.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Peter Oundjian
  • Einleikari
    Hilary Hahn
  • Efnisskrá
    Claude Vivier: Orion
    W.A. Mozart: Fiðlukonsert nr. 4
    Dmitríj Sjostakovitsj: Sinfónía nr. 11
 
lotr_listi

Hringadróttinssinfónían 16.2.2012 20:00 Harpa 17.2.2012 20:00 Harpa

Sinfóníhljómsveit Íslands leikur tónlistina úr kvikmyndum Peters Jackson um Hringadróttinssögu Tolkien. Tónskáldið Howard Shore tónsetti myndirnar og vann m.a. til Óskarsverðlauna 2002 og 2004 fyrir framlag sitt. Undanfarin ár hefur tónleikaútgáfa verksins farið sigurför um heiminn og slegið aðsóknarmet hjá ýmsum hljómsveitum. Þetta verða stórglæsilegir tónleikar þar sem fram koma einsöngvarar, fjórir kórar og fjöldi óvenjulegra hljóðfæra, auk þess sem myndefni sem tengist kvikmyndunum og sögu Tolkiens verður varpað á tjald í Eldborg. Svissneska tónskáldið Ludwig Wicki hefur stýrt þessu stórvirki í London, New York og víðar.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Erik Ochsner
  • Einsöngvari
    Nancy Allen Lundy
  • Kór
    Hljómeyki, Kór Áskirkju, Söngsveitin Filharmónía, Stúlknakór Reykjavíkur
    Magnús Ragnarsson, Margrét Pálmadóttir kórstjórar
  • Efnisskrá
    Howard Shore: Lord of the Rings Symphony
 
kermes_listi

Eftirlætis barokk 23.2.2012 19:30 Harpa

Þýska sópransöngkonan Simone Kermes er einstök í sinni röð. Vald hennar á röddinni er með eindæmum, jafnt í ljóðrænum söng sem hröðustu tónarunum, og hún syngur með þvílíkri innlifun að leitun er að öðru eins. Hún hefur sungið aríur eftir m.a. Händel og Vivaldi inn á tvo verðlaunadiska hjá Sony Classical sem hafa sópað að sér viðurkenningum, meðal annars Echo-, Midem- og Choc de la Musique-verðlaununum, auk þess sem nýjasti diskur hennar var valinn diskur mánaðarins hjá tímaritinu Gramophone. Kermes hlaut fyrstu verðlaun í Bach-keppninni í Leipzig árið 1996 og hefur síðan sungið í öllum helstu óperu- og tónleikahúsum heims við mikinn fögnuð.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Enrico Casazza
  • Einleikari
    Enrico Casazza
  • Einsöngvari
    Simone Kermes
  • Efnisskrá
    Arcangelo Corelli: Concerto grosso op. 6 nr. 4
    G.F. Händel: Óperuaríur
    Antonio Vivaldi: Óperuaríur
    Antonio Vivaldi: Fiðlukonsertar í D-dúr og e-moll
 
volkov_listi

Nútímahátíð Ilan Volkov 1.3.2012 Harpa 2.3.2012 Harpa 3.3.2012 Harpa

Nýr aðalstjórnandi Sinfóníunnar, Ilan Volkov, er mikill áhugamaður um nýja tónlist og hefur hlotið mikið lof fyrir störf sín á þeim vettvangi. Hann mun stýra árlegri tónlistarhátíð í Reykjavík sem verður helguð nýrri tónlist, bæði innlendri og erlendri, í samstarfi við tónlistarmenn úr ýmsum áttum. Þessi hátíð er spennandi viðbót við fjölbreytta tónleikaflóru landsins og hafa áform Volkovs þegar vakið athygli utan landsteinanna. John Tilbury og Oren Ambarchi koma fram með hljómsveitinni er hún leikur verk eftir John Cage, Magnús Blöndal o.fl.

Lesa meira
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
  • Einleikarar
    John Tilbury
    Oren Ambarchi o.fl.
  • Efnisskrá
    Nánar kynnt síðar (lesa meira)
 
Lise_Berthaud_listi

Mozart-veisla 15.3.2012 19:30 Harpa

Paul McCreesh er í fremstu röð þeirra sem sérhæfa sig í tónlist barokks og klassíkur. Hann vakti mikla hrifningu er hann stjórnaði Sköpuninni eftir Haydn á tónleikum Sinfóníunnar 2009. McCreesh snýr aftur með Mozart-veislu í farteskinu. Messan í c-moll var stærsta tónsmíð Mozarts fyrir kór og hljómsveit, að undanskilinni sálumessunni sem hann náði ekki að ljúka. Annað eins einvalalið einsöngvara og einleikara hefur sjaldan sést á tónleikum hérlendis. Sænska sópransöngkonan Miah Persson, skoska sópransöngkonan Lisa Milne, Andrew Staples og Ágúst Ólafsson syngja. Elfa Rún Kristinsdóttir og Lise Berthaud leika einleik í Sinfonia Concertante fyrir fiðlu, viólu og hljómsveit.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Paul McCreesh
  • Einleikarar
    Elfa Rún Kristinsdóttir
    Lise Berthaud
  • Einsöngvarar
    Rosemary Joshua
    Lisa Milne
    Andrew Staples
    Ágúst Ólafsson
  • Kór
    Mótettukór Hallgrímskirkju
    Hörður Áskelsson kórstjóri
  • Efnisskrá
    W.A. Mozart: Sinfonia concertante og Messa í c-moll
 
mihaela_ursuleasa_listi

Uppáhalds Mozart 30.3.2012 19:30 Harpa

Rúmenski píanóleikarinn Mihaela Ursuleasa var aðeins sextán ára gömul þegar hún bar sigur úr býtum í Clöru Haskil-keppninni, og síðan hefur vegur hennar vaxið með hverju árinu. Nýlega debúteraði hún m.a. í Carnegie Hall og Concertgebouw, og í fyrra hlaut fyrsti hljómdiskur hennar hin virtu ECHOverðlaun sem einleiksdiskur árins. Leikandi létt spilamennska hennar þykir henta tónlist Mozarts fullkomlega.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernard Labadie
  • Einleikari
    Mihaela Ursuleasa
  • Efnisskrá
    W.A. Mozart: Brúðkaup Fígarós, forleikur
    Píanókonsert nr. 21 í C-dúr, K. 467 og Sinfónía nr. 41 í C-dúr (Júpíter)
 
tonsproti_sveit_listi

Úti í náttúrunni 28.4.2012 14:00 Harpa

Hvað er yndislegra en að njóta þess að eiga góðan dag í fallegri náttúru? Jú, kannski að heyra dásamlega tónlist sem er innblásin af náttúrunni. Tónskáld á öllum tímum sögunnar hafa leitað í náttúruna þegar kom að því að semja tónlist, og á þessum tónleikum hljóma nokkur slík verk. Í Árstíðum Vivaldis heyrum við fuglasöng að vori og dramatíska sumarstorma, í Sveitasinfóníu Beethovens hljómar heilmikið þrumuveður og sama er uppi á teningnum í annars fjörugum polka Johanns Strauss.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einleikari
    Sif Tulinius
  • Sögumaður
    Halldóra Geirharðsdóttir
  • Efnisskrá
    Antonio Vivaldi: úr Árstíðunum
    Nikolaj Rimsky-Korsakov: Býflugan
    Johann Strauss: Þrumur og eldingar
    Ludwig van Beethoven: úr Sveitasinfóníunni
    Bedrich Smetana: Moldá
 
sigrun_edvalds_listi

Sigrún spilar Sjostakovitsj 10.5.2012 19:30 Harpa

Pietari Inkinen vakti gríðarlega hrifningu hljóðfæraleikara og tónleikagesta er hann stjórnaði SÍ í febrúar 2010 og var honum samstundis boðið að koma aftur við fyrsta tækifæri. Önnur sinfónía Sibeliusar er hans vinsælasta, og ekki að ástæðulausu. Vorið 1900 dvaldi hann á Ítalíu þar sem hann töfraði fram glaðlega tóna sinfóníunnar. Sigrúnu Eðvaldsdóttur er varla þörf á að kynna. Hún hefur löngu spilað sig inn í hjörtu landsmanna með tilfinningaþrunginni túlkun. Fyrri fiðlukonsert Sjostakovitsj er eitt hans áhrifamesta verk, og einn glæsilegasti fiðlukonsert 20. aldarinnar. Þó varð hann til á einhverjum erfiðasta tímanum á ferli tónskáldsins.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Pietari Inkinen
  • Einleikari
    Sigrún Eðvaldsdóttir
  • Efnisskrá
    Dmitríj Sjostakovitsj
    Fiðlukonsert nr. 1
    Jean Sibelius
    Sinfónía nr. 2
 
tonsproti_maxi_ballet_listi

Maxímús bjargar ballettinum 19.5.2012 14:00 Harpa 19.5.2012 17:00 Harpa

Í nýja ævintýrinu um Maxa kynnist Maxímús Músíkús börnum sem hafa yndi af því að dansa við tónlist. Hann verður himinlifandi þegar tónlistarhúsið fyllist af ungum dönsurum því að honum finnst líka svo gaman að dilla sér í takt við tónlistina. Maxímús Músíkús dáist að færni ungu dansaranna og ákveður að kanna málið. Hann gerist laumufarþegi með einu barnanna og fylgist heillaður með dansæfingum nemendanna í listdansskólanum og því hvernig tónlistin er túlkuð í hreyfingum.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einleikarar
    Nemendur úr Listdansskóla Íslands
  • Sögumaður
    Valur Freyr Einarsson
  • Efnisskrá
    Alexander Glazunov: Veturinn
    Pjotr Tsjajkovskíj: úr Þyrnirós
    Maurice Ravel: Gæsamömmusvíta
    Jórunn Viðar: Eldur
 
gudrun_listi

Rómeó og Júlía 25.5.2012 19:30 Harpa

Sinfóníuhljómsveitin flytur nú Rómeó og Júlíu eftir franska meistarann Hector Berlioz. Þetta einstaklega frumlega og forvitnilega verk er nú flutt í fyrsta sinn á Íslandi. Hér er sinfóníuformið teygt í ýmsar áttir svo úr verður eins konar bræðingur hljómsveitarverks og óperu. Sveinn Dúa Hjörleifsson hefur vakið hrifningu fyrir silkimjúka tenórrödd sína og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir söng sinn. Franski bassasöngvarinn Nicolas Cavallier fer með hlutverk Bróður Lárens í þessari uppfærslu og kemur beint til Íslands eftir að hafa sungið í Rómeó og Júlíu við Bastilluóperuna í París.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
  • Einsöngvarar
    Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
    Sveinn Dúa Hjörleifsson
    Nicolas Cavallier
  • Kór
    Hljómeyki, Kór Áskirkju, Söngsveitin Fílharmónía
    Magnús Ragnarsson kórstjóri
  • Efnisskrá
    Hector Berlioz: Rómeó og Júlía
 
Beethoven_listi

Beethoven-hringurinn III 1.6.2012 19:30 Harpa

Á þriðju tónleikunum í Beethoven-hring Sinfóníunnar hljóma tvær vinsælar sinfóníur meistarans. Eftir hina hádramatísku fimmtu sinfóníu venti hann kvæði sínu í kross og samdi Sveitasinfóníuna „Minningar um sveitalífið.“ Fuglakvak, glaðværir sveitadansar, ógnvænlegt þrumuveður og ljúfir hjarðsöngvar eru meðal þess sem heyrist. Sjöunda sinfónía Beethovens er einhver glaðværasta og fjörugasta tónlist sem meistarinn festi á blað enda einkennist verkið af rytmískri spennu í bland við léttar og leikandi laglínur. Þekktastur er án efa hægi kaflinn, sem oft hefur hljómað í kvikmyndum, meðal annars undir hápunkti myndarinnar The King's Speech þar sem Georg VI Bretlandskonungur ávarpar þjóð sína við upphaf heimsstyrjaldarinnar síðari.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Hannu Lintu
  • Efnisskrá
    Ludwig van Beethoven
    Sinfónía nr. 6, Sveitasinfónían og Sinfónía nr. 7
 
hannu_lintu_II_listi

Beethoven-hringurinn IV 7.6.2012 19:30 Harpa 8.6.2012 19:30 Harpa

Sinfóníuhljómsveitin lokar Beethovenhringnum. Tvær síðustu sinfóníum meistarans eru báðar meistaraverk hvor á sinn hátt. Sú níunda er eitt frægasta og áhrifamesta verk sígildrar tónlistar.  Páll Ísólfsson komst þannig að orði í grein sinni um Beethoven frá árinu 1938: „Gleði og bræðralagi hefur aldrei verið sungið eins fagurlega lof og í 9. hljómkviðunni. Þess vegna er hún svo oft leikin við ýmis tímamót víðsvegar um heim. Því hvort heldur hún er leikin í Þýskalandi, Frakklandi, Englandi, Rússlandi: alls staðar snerta þessir tónar mannleg hjörtu, og fylla þau fögnuði vonarinnar um bætt kjör og betri örlög mannanna.“

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Hannu Lintu
  • Einsöngvarar
    Andrew Kennedy
    Hulda Björk Garðarsdóttir
    Nathalía Druzin Halldórsdóttir
    Ágúst Ólafsson
  • Kór
    Mótettukór Hallgrímskirkju
  • Efnisskrá
    Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 8 og Sinfónía nr. 9, Óðurinn til gleðinnar
 
Christine_Schafer_listi

Mozart og Schäfer 14.6.2012 19:30 Harpa

Christine Schäfer er ein dáðasta sópransöngkona Þýskalands. Nýverið söng hún í Rosenkavalier í Metropolitan-óperunni þar sem hún þurfti að verjast ágengni Kristins Sigmundssonar í hlutverki Ochs baróns. Adagio eftir Jón Nordal var frumflutt árið 1966 og þykir eitt hans allra besta verk: fágað, ljóðrænt og heilsteypt. Það er í uppáhaldi hjá nýjum aðalstjórnanda hljómsveitarinnar sem óskaði sérstaklega eftir að stjórna því á fyrsta ári sínu. Ófullgerða sinfónía Schuberts er lokapunkturinn aftan við starfsár hljómsveitarinnar. Þessi stórkostlega tónsmíð, í tveimur þáttum en ekki fjórum eins og almennt tíðkaðist á 19. öld, fékk aldrei að hljóma meðan hann lifði.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
  • Einsöngvari
    Christine Schäfer
  • Efnisskrá
    Jón Nordal: Adagio
    Alban Berg: Altenberg-Lieder
    W.A. Mozart: Non mi dir, úr Don Giovanni og Misera, dove son, K. 369
    Franz Schubert: Ófullgerða sinfónían
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica