EN

Ævintýratónleikar Ævars

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
10. feb. 2018 » 14:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.400 - 2.800 kr.
10. feb. 2018 » 16:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 2.400 - 2.800 kr.
  • Efnisskrá

    Tónlist úr Harry Potter, Hringadróttinssögu, Draugabönum o.fl.

  • Hljómsveitarstjóri

    Bernharður Wilkinson

  • Kynnir

    Ævar Þór Benediktsson

  • Hreyfimyndir

    Svart Design

Ævar Þór vísindamaður, leikari og rithöfundur sló eftirminnilega í gegn á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands fyrir tveimur árum. Nú er hann mættur aftur með spennuþrungin ævintýri í farteskinu. Ævar og Sinfóníuhljómsveitin fara um víðan völl og með forvitnina að vopni kynnir hann fyrir hlustendum ævintýralegustu tónverkin sem hann þekkir. Þess á milli á milli segir Ævar nokkur af uppáhalds ævintýrunum sínum.

Á tónleikunum verður meðal annars flutt tónlist úr Harry Potter-myndunum, Sjóræningjum Karíbahafsins, Hringadróttinssögu og Draugabönum ásamt glænýju íslensku tónverki sem var unnið upp úr verðlaunabókinni Þín eigin þjóðsaga.

Ekki missa af þessum æsispennandi ævintýratónleikum þar sem hlustandinn veit ekki hvers má vænta handan hornsins. 

Tónleikarnir kl. 16:00 eru túlkaðir á táknmáli í tilefni af degi íslenska táknmálsins sem er 11. febrúar. Táknmálstúlkur er Eyrún Helga Aradóttir.

Sækja tónleikaskrá