EN
  • Astrid Lindgren tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Astrid Lindgren tónleikar

Áskrift að tónleikaröð eða Regnbogakorti tryggir þér öruggt sæti á besta verðinu með 20% afslætti
Dagsetning Staðsetning Verð
30. sep. 2017 » 14:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 1.900 - 2.800 kr.
30. sep. 2017 » 16:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa 1.900 - 2.800 kr.
  • Efnisskrá

    Tónlist úr Línu Langsokk, Emil í Kattholti og fleiri ævintýrum eftir Astrid Lindgren í nýjum útsetningum eftir Jóhann G. Jóhannsson.

  • Hljómsveitarstjóri

    Anna-Maria Helsing

  • Söngvarar

    Þórunn Arna Kristjánsdóttir og
    Sigurður Þór Óskarsson

  • Kór

    Kór Kársnesskóla

Á þessum einstöku tónleikum verður flutt úrval tónlistar úr leikritum, leikgerðum og kvikmyndum sem byggjast á ævintýrum eftir Astrid Lindgren. Tónlist úr Línu Langsokk, Emil í Kattholti, Bróður mínum Ljónshjarta og Á Saltkráku hljómar nú í fyrsta sinn á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í nýjum útsetningum Jóhanns G. Jóhannssonar. Gáskafull tónlistin með grípandi laglínum undirstrikar vel kenjar og óknytti sögupersónanna en einnig er að finna hrífandi og hugljúfa tónlist sem fangar vináttu og væntumþykju betur en nokkur orð.

Leikararnir Sigurður Þór og Þórunn Arna bregða sér í hlutverk ýmissa sögupersóna og færa sagnaheim Lindgren inn í Eldborg. Ásamt Sinfóníuhljómsveitinni syngur Kór Kársnesskóla undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur söngva úr ævintýrunum. Líf og fjör einkennir þessa tónleika þar sem uppeldissjónarmið fullorðinna eru teygð og toguð og hugmyndir æskunnar um lífið og tilveruna fá að njóta sín til fulls.

Söngur, gleði og gaman með kórkrökkum úr Kársnesskóla hálftíma fyrir og eftir tónleikana kl. 14 og 16. Allir velkomnir!

Sækja tónleikaskrá