Dagsetning | Staðsetning | Verð |
---|---|---|
11. mar. 2017 » 11:30 » Laugardagur | Hörpuhorn | Harpa | Aðgangur ókeypis |
-
Efnisskrá
Gamlir gullmolar og nýjar útsetningar ungra tónskálda verða í forgrunni ásamt léttu og skemmtilegu lögunum sem eiga sinn fasta sess á þessari sannkölluðu gæðastund.
-
Kynnir
Hjördís Ástráðsdóttir
Í síðari Barnastund vetrarins fögnum við vorkomunni með fjölbreyttri tónlist. Gamlir gullmolar og nýjar útsetningar ungra tónskálda verða í forgrunni ásamt léttu og skemmtilegu lögunum sem eiga sinn fasta sess á þessari sannkölluðu gæðastund.
Barnastundir Sinfóníuhljómsveitarinnar hafa notið mikilla vinsælda. Tónlistin og lengd stundarinnar er sérstaklega sniðin að þeim hópi sem er of ungur til að sitja heila tónleika í Litla tónsprotanum. Barnastundin er hálftíma löng og fer fram í Hörpuhorni á 2. hæð, framan við Eldborg. Gott er að taka með sér púða til að sitja á. Ókeypis er á tónleikana og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Sérstakur gestur er Maxímús Músíkús.