EN

Hollywood / Reykjavík

Tónlist úr vinsælum Hollywood-kvikmyndum

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
12. okt. 2017 » 19:30 » Fimmtudagur Eldborg | Harpa 2.500 - 7.500 kr.
  • Efnisskrá

    Tónlist úr vinsælum kvikmyndum: Stjörnustríði, Súperman, Gone with the Wind, Sunset Boulevard, The Monuments Men, Breakfast at Tiffany's, Ben-Húr og Brúnni yfir ána Kwai.

  • Hljómsveitarstjóri

    Richard Kaufman

Á þessum tónleikum verður gægst í gullkistu kvikmyndatónlistar frá Hollywood. Þar er af nógu að taka: Ben-Húr, Brúin yfir ána Kwai, Gone with the Wind og Breakfast at Tiffany's, auk þess sem leikin verða stef úr myndunum Súperman og Stjörnustríð eftir hinn sívinsæla John Williams.

Hljómsveitarstjórinn Richard Kaufman hefur áratuga reynslu af störfum í Hollywood þar sem hann stjórnar tónlist fyrir kvikmyndir og sjónvarpsþætti auk þess að koma fram með leiðandi hljómsveitum Bandaríkjanna. 

Kaufman hefur meðal annars stjórnað kvikmyndatónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í Chicago síðustu 11 ár við frábærar undirtektir. Kaufman er líka sá sem stjörnurnar fá til að þjálfa sig þegar þær þurfa að þykjast leika á hljóðfæri í kvikmyndum. Tom Hanks og Jack Nicholson eru meðal þeirra sem þegið hafa leiðsögn hans í þeim efnum. 

Tónleikarnir eru liður í LA / Reykjavík hátíð Sinfóníuhljómsveitar Íslands.

 

Sækja tónleikaskrá