EN

Klassíkin okkar

Uppáhalds tónverk þjóðarinnar

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
2. sep. 2016 » 20:00 » Föstudagur Eldborg | Harpa 2.500 - 3.500 kr.
  • Efnisskrá

    Richard Wagner: Valkyrjureiðin
    Johannes Brahms: Ungverskur dans nr. 5
    Edvard Grieg: Í höll dofrakonungs
    Carl Orff: O fortuna (úr Carmina Burana)
    Pjotr Tsjajkovskíj: Píanókonsert nr. 1, 1. kafli
    J.S. Bach: Air úr Hljómsveitarsvítu nr. 3
    Antonio Vivaldi: Vorið, 1. kafli
    Maurice Ravel: Bolero
    Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 9, 4. kafli (Óðurinn til gleðinnar)

  • Hljómsveitarstjóri

    Daníel Bjarnason

  • Einleikarar

    Sigrún Eðvaldsdóttir og Víkingur Heiðar Ólafsson

  • Einsöngvarar

    Þóra Einarsdóttir, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Elmar Gilbertsson og Kristinn Sigmundsson

  • Kórar

    Mótettukór Hallgrímskirkju, Óperukórinn í Reykjavík og Söngsveitin Fílharmónía

Í vor efndu Sinfóníuhljómsveit Íslands og RÚV til netkosningar meðal landsmanna þar sem leitað var að eftirlætis tónverkum þjóðarinnar. Hægt var að velja úr lista með vinsælum klassískum verkum eða tilnefna önnur. Þau tónverk sem yrðu hlutskörpust myndu svo hljóma á sérstökum hátíðartóneikum Sinfóníunnar.

Þúsundir atkvæða féllu í kosningunni en þau tónverk sem hlutu flest atkvæði sigruðu með nokkrum yfirburðum. Athygli vekur að þau verk sem fyrir valinu urðu krefjast mörg fleiri listamanna er hljómsveitarinnar sjálfrar og því ljóst að fjöldi flytjenda á tónleikunum 2. september verður mikill. 

Einleikarar á tónleikunum verða Víkingur Heiðar Ólafsson sem leikur píanókonsert Tsjajkovsíkjs nr. 1 og Sigrún Eðvaldsdóttir sem leikur Vorið úr Árstíðum Vivaldis. Tónleikunum lýkur á lokakafla 9. sinfóníu Beehtovens, Óðnum til gleðinnar. Einsöngvarar verða Þóra Einarsdóttir, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Elmar Gilbertsson og Kristinn Sigmundsson en Mótettukór Hallgrímskirkju tekur þátt í flutningnum undir stjórn Harðar Áskelssonar. Þá syngja Óperukórinn í Reykjavík undir stjórn Garðars Cortes og Söngsveitin Fílharmónía undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar O fortuna úr Carmina Burana eftir Carl Orff. Daníel Bjarnason, staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands stýrir tónleikunum.

Tónleikarnir verða í beinni sjónvarpsútsendingu á RÚV. 

Sækja tónleikaskrá