EN

Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir

Sellóleikari

Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir hóf sellónám við Tónlistarskólann á Akureyri ung að árum. Að loknu framhaldsprófi lærði hún hjá Sigurgeiri Agnarssyni og Gunnari Kvaran við Listaháskóla Íslands og Morten Zeuthen við Konunglega konservatoríið í Kaupmannahöfn. Frá 2014 hefur Hrafnhildur stundað nám við Jacobs School of Music, Indiana University undir handleiðslu Brandons Vamos, sellóleikara Pacifica-strengjakvartettsins. Hún hefur sótt einkatíma og meistaranámskeið hjá Johannes Moser, Amir Eldan, Marcy Rosen, Alison Wells, Emile Naoumoff, Kurt Muroki o.fl.

Hrafnhildur hefur komið víða fram á tónlistarhátíðum innan- lands og utan, leikið með Cleveland-sinfóníuhljómsveitinni og tekið upp fyrir Naxos-útgáfufyrirtækið undir stjórn Arthurs Fagen. Hún er handhafi Premier Young Artist Award og Marcie Tichenor-skólastyrksins. Hrafnhildur er ekki ókunnug Eldborg, en hún leiddi sellódeild Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands áður en hún hélt erlendis til náms. Hún leikur á Garavaglia-selló frá árinu 2011.