EN

Sigrún Eðvaldsdóttir

Konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands

Sigrún Eðvaldsdóttir hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Gígju Jóhannsdóttur en lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1984 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur og tók Bachelor-gráðu frá Curtis tónlistarháskólanum í Philadelphiu 1988. Hún hefur tekið þátt í fjölda alþjóðlegra fiðlukeppna; varð í öðru sæti í Leopold Mozart keppninni árið 1987, hlaut bronsverðlaun í Síbelíusar keppninni árið 1990 og önnur verðlaun í Carl Flesch keppninni árið 1992. Sama ár hlaut hún bjartsýnisverðlaun Brøste. Hennar er getið sem eins af áhugaverðustu fiðluleikurum framtíðarinnar í bók Henry Roth: Violin Virtuosos from Paganini to the 21st Century. 

Sigrún Eðvaldsdóttir hefur verið gestaleiðari hjá Konunglegu Óperunni í Kaupmannahöfn og hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Árrósum og kemur reglulega fram á kammermúsíkhátíðum á Norðurlöndum á sumrin. Sigrún Eðvaldsdóttir hefur gegnt stöðu 1. konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 1998 og margoft komið fram sem einleikari með hljómsveitinni. Árið 1998 var Sigrún sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir störf sín á sviði tónlistar.