EN

Opið hús á Menningarnótt

Pétur og úlfurinn og Rússnesk veisla

Tryggðu þér besta verðið með 20% afslætti með því að kaupa miða á ferna tónleika eða fleiri – Regnbogakort
Dagsetning Staðsetning Verð
20. ágú. 2016 » 15:00 » Laugardagur Eldborg | Harpa Aðgangur ókeypis
  • Efnisskrá

    Kl. 15:
    Sergei Prokofíev Pétur og úlfurinn
    Kl. 17:
    Mikhail Glinka Rúslan og Lúdmíla, forleikur
    Pjotr Tsjajkovskíj Fiðlukonsert

  • Hljómsveitarstjóri

    Bjarni Frímann Bjarnason og Bernharður Wilkinson

  • Einleikari

    Páll Palomares

Pétur og úlfurinn kl. 15

Á tónleikum kl. 15 er höfðað til yngri kynslóðarinnar með ævintýrinu sívinsæla um Pétur og úlfinn eftir Sergei Prokofíev. Sögunni fylgir bráðskemmtileg mynd eftir Suzie Templeton sem hlaut Óskarsverðlaunin 2008 og sem gagnrýnandi Classic FM-tímaritsins kallaði „lítið meistaraverk“.

Bjarni Frímann Bjarnason stýrir hér hljómsveitinni í fyrsta sinn, en hann hefur hlotið mikið lof fyrir tónlistargáfur sínar og var meðal annars útnefndur Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum í vor. Tónleikarnir eru um það bil hálftími að lengd.

Rússnesk veisla kl. 17

Á seinni tónleikunum verður einnig leikin tónlist eftir rússneska meistara: forleikurinn að Rúslan og Lúdmílu eftir Glinka og fiðlukonsert Tsjajkovskíjs. Þar fer með einleikshlutverkið íslensk-spænski fiðluleikarinn Páll Palomares, sem hefur unnið til verðlauna í fjölda alþjóðlegra keppna undanfarin misseri. Hann kom fram með hljómsveitinni eftir að hafa orðið hlutskarpastur í einleikarakeppni SÍ og LHÍ árið 2007 og í vetur gegnir hann stöðu leiðarar 2. fiðlu Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson.

Kynnir á báðum tónleikunum er Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Aðgangur að báðum tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Hægt er að nálgast miða í miðasölu Hörpu samdægurs frá kl. 10.