Dagsetning | Staðsetning | Verð |
---|---|---|
17. nóv. 2016 » 19:30 » Fimmtudagur | Eldborg | Harpa | 2.500 - 7.200 kr. |
-
Efnisskrá
Haukur Tómasson From Darkness Woven
Richard Strauss Burleske
Ígor Stravinskíj Capriccio
Ígor Stravinskíj Eldfuglinn, svíta
-
Hljómsveitarstjóri
-
Einleikari
Richard Strauss og Ígor Stravinskíj teljast með helstu tónjöfrum 20. aldar. Hér hljóma sjaldheyrð verk þeirra fyrir píanó og hljómsveit, Burleske og Capriccio – bæði eins konar skemmtimúsík full af glensi og fjöri. Strauss var ekki nema tuttugu og eins árs gamall þegar hann samdi Burleske en það var alla tíð í miklum metum hjá tónskáldinu sem jafnvel taldi það með sínum bestu verkum; nú hljómar það á tónleikum á Íslandi í fyrsta sinn. Capriccio Stravinskíjs frá árinu 1929 er sömuleiðis glettin tónsmíð sem minnir jafnvel á Poulenc.
Tveimur áratugum fyrr hafði Stravinskíj náð athygli svo um munaði með glæsilegri tónlist sinni við ballettinn Eldfuglinn, sem tryggði framtíð hans næstu árin. Þetta verk hefur allar götur síðan verið talið til meistaraverka tónlistarinnar á 20. öld og á þessum tónleikum hljómar svíta með frægustu þáttunum, meðal annars kraftmiklum og ógnvænlegum vítisdansinum. Nýtt hljómsveitarverk eftir Hauk Tómasson sætir ávallt tíðindum enda er hann eitt helsta tónskáld sinnar kynslóðar og verk hans njóta sífellt meiri hylli um allan heim.
Víkingur Heiðar Ólafsson er óðum að vekja athygli á heimsvísu fyrir innblásinn og agaðan leik sinn. Á undanförnum mánuðum hefur hann meðal annars leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit danska útvarpsins undir stjórn Ashkenazys, auk þess sem hann tók við stjórn tónlistarhátíðarinnar Vinterfest af sænska klarínettsnillingnum Martin Fröst.