Október 2009

október 2009

(Sleppa dagatali)
F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L
1
fimmtudagur
2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15
fimmtudagur
16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29
fimmtudagur
30 31

Tónleikar

gringolts_listi

Evrópsk rómantík 1.10.2009 19:30 Háskólabíó

Tónlist 19. aldar með þjóðlegu ívafi einkennir fyrstu gulu tónleika starfsársins. Fiðlukonsert Dvorák er blanda af flæðandi lýrík og hressilegum tékkneskum sveitadönsum. Það er líka líf og fjör í Skosku sinfóníu Mendelssohn.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Kirill Karabits
  • Einleikari
    Ilya Gringolts
  • Efnisskrá
    Hector Berlioz: Beátrice og Benedict, forleikur
    Antonín Dvorák: Fiðlukonsert
    Felix Mendelssohn: Sinfónía nr. 3, Skoska sinfónían
 
eldfuglinn_listi

Ævintýrið um Eldfuglinn 10.10.2009 14:00 Háskólabíó

Í Rússlandi býr ungur prins sem heitir Ívan. Hann verður ástfanginn af fallegri prinsessu en hún er í haldi Kasteis, sem er ógurlegt skrímsli. Ívan ákveður að stefna lífi sínu í voða til að bjarga ástinni sinni frá glötun og með hjálp göldrótta eldfuglsins tekst honum að vinna bug á Kastei hinum illa.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Rumon Gamba
  • Sögumaður
    Trúðurinn Barbara (Halldóra Geirharðsdóttir)
  • Efnisskrá
    Ígor Stravinskíj: Eldfuglinn
 
stefan_listi

Sólskinssinfónían 15.10.2009 19:30 Háskólabíó

Eivind Aadland hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit Íslands tvisvar sinnum áður og hlotið frábærar viðtökur í bæði skiptin. Hann lærði hjá meisturunum Yehudi Mehuhin og Jorma Panula og nýtur mikillar virðingar í starfi sínu sem aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Þrándheimi. Stefán Jón Bernharðsson leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands en var áður sóló-hornleikari við Óperuna í Malmö.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Eivind Aadland
  • Einleikari
    Stefán Jón Bernharðsson
  • Efnisskrá
    Haukur Tómasson: Strati
    Richard Strauss: Hornkonsert nr. 2
    Johannes Brahms: Sinfónía nr. 2
 
starwars_listi

Kvikmyndatónlist John Williams 22.10.2009 19:30 Háskólabíó 23.10.2009 19:30 Háskólabíó

John Williams hefur samið tónlist við fleiri ódauðlegar bíómyndir en nokkur annar fyrr eða síðar. Hann hefur verið tilnefndur til 45 Óskarsverðlauna sem eru fleiri tilnefningar en nokkur annar hefur hlotið, að Walt Disney undanskildum.

Lesa meira
  • Stjórnandi
    Michael Krajewskí
  • Efnisskrá
    John Williams: Star Wars, E.T., Raiders of the Lost Ark o.fl.
 
martin_frost_listi

Eftirlætis Mozart 29.10.2009 19:30 Háskólabíó

Sænski klarínettusnillingurinn Martin Fröst er staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands starfsárið 2009-10. Hann hefur fyrir löngu skipað sér í hóp fremstu tónlistarmanna Norðurlanda, hefur hlotið ótal verðlaun og komið fram í virtustu tónleikasölum heims.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Matthew Halls
  • Einleikari
    Martin Fröst
  • Efnisskrá
    W.A. Mozart: Brúðkaup Fígarós, forleikur
    W.A. Mozart: Klarínettukonsert í A-dúr
    W.A. Mozart: Sinfónía nr. 40 í g-moll, K. 550
 


Aðalstyrktaraðilar

Borgun VÍS Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica