Kvikmyndatónlist John Williams
UPPSELT
John Williams hefur samið tónlist við fleiri ódauðlegar bíómyndir en nokkur annar fyrr eða síðar. Hann hefur verið tilnefndur til 45 Óskarsverðlauna sem eru fleiri tilnefningar en nokkur annar hefur hlotið, að Walt Disney undanskildum. Þá hefur hann m.a. samið tónlist til flutnings á fernum Ólympíuleikum og við innsetningu Baracks Obama í embætti Bandaríkjaforseta. Williams er hámenntaður tónlistarmaður og nam við hinn virta Juilliardlistaskóla í New York. Tónlist hans er oft samin fyrir stóra og glæsilega sinfóníuhljómsveit þar sem spennan nýtur sín til fulls.
Meistaraverk hans er án efa tónlistin við Stjörnustríðsmyndirnar sex. Þar er mikilfengleg tónlistin undir sterkum áhrifum frá síðrómantískum tónskáldum, m.a. Richard Wagner, Richard Strauss og Gustav Holst. Til að gefa hugmynd um umfang verksins má nefna að það myndi taka um 14klukkustundir að flytja tónlistina við Stjörnustríð í heild sinni. Árið 2005 stóð Bandaríska kvikmyndaakademían fyrir því að útnefna bestu kvikmyndatónlist allra tíma og þarf varla að koma á óvart að þar hafi Stjörnustríð orðið fyrir valinu.
SÍ flytur alla helstu gullmolana sem Williams hefur samið, meðal annars tónlist úr Stjörnustríði, Superman, E.T. og Raiders of the Lost Ark. Þetta eru tónleikar sem engir áhugamenn um kvikmyndir og góða tónlist mega láta fram hjá sér fara!
Efnisskrá;
Ólympíustef
Kúrekarnir, forleikur
Jaws, aðalstef
E.T.: Flugstefið
Harry Potter og viskusteinninn: Stef Hedwigs
Schindler´s List, aðalstef
Jurassic Park, aðalstef
Mars úr Raiders of the Lost Ark
Tónlist úr Star Wars:
Aðalstef
Skrúðganga
Stef Anakins
Hetjuslagur
Keisaramars
Stef Yodas
Lokastef
Superman, aðalstef
-
Stjórnandi
Michael Krajewskí
-
Efnisskrá
John Williams: Star Wars, E.T., Raiders of the Lost Ark o.fl.



