| S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5
fimmtudagur
|
6
föstudagur
|
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19
fimmtudagur
|
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26
fimmtudagur
|
27 | 28 | 29 | 30 |
Ásdís Valdimarsdóttir er ein þeirra Íslendinga sem hafa náð hvað lengst í tónlist á alþjóðlegum vettvangi. Hún lærði við Juilliard-tónlistarskólann og var víóluleikari Chilingirian-kvartettsins um árabil, auk þess sem hún hefur komið fram með mörgum helstu tónlistarmönnum heims.
Lesa meira Kaupa miða
Þótt hið hefðbundna tónleikaform standi ávallt fyrir sínu er hollt og gott að breyta til og reyna aðrar leiðir til að gefa hlustendum innsýn í heim sígildrar tónlistar. Í tónleikum undir merkinu Heyrðu mig nú! er tónlistin kynnt á nýstárlegan og aðgengilegan hátt.
Lesa meira Kaupa miða
Milli tónskáldanna Roberts Schumann og Johannesar Brahms ríkti djúp vinátta þótt kynni þeirra yrðu því miður ekki langvinn. Í tilefni þess að 8. júní 2010 eru 200 ár liðin frá fæðingu Schumanns efnir SÍ til Schumann/Brahms-veislu sem mun standa fram á vor 2011, með tónleikum þar sem leiknar verða sinfóníur þeirra og einleikskonsertar fyrir ýmis hljóðfæri.
Lesa meira Kaupa miða
Lettneska sópransöngkonan Inessa Galante hefur átt glæstan feril við mörg helstu óperuhús Evrópu og syngur nú með Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn.
Lesa meira Kaupa miða