Nóvember 2009

nóvember 2009

(Sleppa dagatali)
S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M
1 2 3 4 5
fimmtudagur
6
föstudagur
7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19
fimmtudagur
20 21 22 23 24 25 26
fimmtudagur
27 28 29 30

Tónleikar
siirala_stor
  • 19.11.2009 19:30
  • Háskólabíó
  • 3.700 / 3.300 KR.
  • Kaupa miða

Schumann & Brahms I

Milli tónskáldanna Roberts Schumann og Johannesar Brahms ríkti djúp vinátta þótt kynni þeirra yrðu því miður ekki langvinn. Í tilefni þess að 8. júní 2010 eru 200 ár liðin frá fæðingu Schumanns efnir SÍ til Schumann/Brahms-veislu sem mun standa fram á vor 2011, með tónleikum þar sem leiknar verða sinfóníur þeirra og einleikskonsertar fyrir ýmis hljóðfæri.

Á fyrstu tónleikunum hljómar hinn geysivinsæli píanókonsert Schumanns, glóðheit ástarjátning hans til Clöru eiginkonu sinnar. Clara Schumann var líka sú fyrsta sem Brahms leyfði að heyra fjórðu sinfóníu sína tæpri hálfri öld síðar. Í sinfóníunni mætast nútíð og fortíð á áhrifamikinn hátt; tónlistin er tilfinningaþrungin og rómantísk en í síðasta kafla lítur aldna tónskáldið um öxl og byggir á kantötukafla eftir Johann Sebastian Bach.

Finnski píanóleikarinn Antti Siirala skaust upp á stjörnuhimininn þegar hann bar sigur úr býtum í Beethoven-píanókeppninni í Vínarborg 1997 og festi sig í sessi þegar hann endurtók leikinn í píanókeppninni í Leeds 2003. Þessi frábærlega hæfileikaríki píanisti er á algjörum heimavelli í píanókonserti Schumanns, enda hefur hann fengið mikið lof heimspressunnar fyrir flutning sinn á rómantískri tónlist.

Eva Ollikainen vakti mikla aðdáun þegar hún stýrði Sinfóníuhljómsveit Íslands í fjórðu sinfóníu Nielsens haustið 2007 og bæði hljómsveit og áheyrendur létu í ljós ósk um að hún kæmi fljótt aftur. Nú er komið að því og það er gaman að geta þess að þau Siirala voru samtíða í Sibeliusar-akademíunni í Helsinki. Þar léku þau stundum saman píanókonserta fjórhent en þetta verður í fyrsta sinn síðan þau luku námi sem þau koma fram á sömu tónleikum.

Sækja efnisskrá

  • Stjórnandi
    Eva Ollikainen
  • Einleikari
    Antti Siirala
  • Efnisskrá
    Robert Schumann: Píanókonsert
    Johannes Brahms: Sinfónía nr. 4

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica