Uppáhalds rómantík
Lettneska sópransöngkonan Inessa Galante hefur átt glæstan feril við mörg helstu óperuhús Evrópu og syngur nú með Sinfóníuhljómsveit Íslands í fyrsta sinn.
Henni var um árabil bannað að ferðast til Vesturlanda en undanfarin ár hefur hún unnið hvern stórsigurinn á fætur öðrum eins og einróma undirtektir gagnrýnenda bera vitni um.
Tilfinningaþrungin túlkun hennar á Ave Maria eftir Caccini hefur kallað fram tár hjá mörgum hlustendum og á tónleikunum með SÍ mun hún einmitt syngja þetta verk auk þess að flytja margar frægustu sópranaríur sögunnar.
Ekki spillir heldur stemningunni að hljómsveitin mun flytja tvö sígild meistaraverk, líflegan forleikinn að Vilhjálmi Tell og sprellfjöruga ítalska kaprísu Tsjajkovskíjs. Þessa tónleika mega áhugamenn um óperur ekki láta framhjá sér fara.
-
Stjórnandi
Rumon Gamba
-
Einsöngvari
Inessa Galante
-
Efnisskrá
Gioacchino Rossini: Vilhjálmur Tell, forleikur
Pjotr Tsjajkovskíj Capriccio italien



