Nóvember 2009

nóvember 2009

(Sleppa dagatali)
S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M
1 2 3 4 5
fimmtudagur
6
föstudagur
7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19
fimmtudagur
20 21 22 23 24 25 26
fimmtudagur
27 28 29 30

Tónleikar
asdis_stor
  • 5.11.2009 19:30
  • Háskólabíó
  • 3.700 / 3.300 KR.
  • Kaupa miða

Ásdís og Eldfuglinn

Ásdís Valdimarsdóttir er ein þeirra Íslendinga sem hafa náð hvað lengst í tónlist á alþjóðlegum vettvangi. Hún lærði við Juilliard-tónlistarskólann og var víóluleikari Chilingirian-kvartettsins um árabil, auk þess sem hún hefur komið fram með mörgum helstu tónlistarmönnum heims, m.a. Claudio Abbado, Maxim Vengerov og Gidon Kremer og hljóðritað fyrir Deutsche Grammophon og EMI.

Það er því sannkallað gleðiefni að bjóða hana aftur til samstarfs við Sinfóníuhljómsveit Íslands í konserti Waltons, sem er talinn einn besti víólukonsert 20. aldarinnar.

Það verður líka ánægjulegt að heyra Corellifantasíuna eftir Tippett, sem aldrei hefur verið flutt á Íslandi fyrr. Það var árið 1953 sem Edinborgar-hátíðin pantaði verkið í tilefni þess að 300 ár voru liðin frá fæðingu barokkmeistarans Corelli og útkoman er afar skemmtilegur bræðingur gamalla og nýrra tíma.

Ígor Stravinskíj var ekki nema 27 ára gamall og nær óþekktur þegar rússneski ballettstjórinn Sergei Diaghilev bað hann að semja tónlist við Eldfuglinn. Þar var sannarlega veðjað á réttan hest. Stravinskíj braut blað í sögu balletttónlistar með kraftmikilli túlkun sinni á rússnesku þjóðsögunni um prinsinn Ívan sem bjargar prinsessunni sinni úr klóm óargadýrs.

Að heyra Eldfuglinn á tónleikum er upplifun sem lætur engan ósnortinn.

Sækja efnisskrá

  • Stjórnandi
    Rumon Gamba
  • Einleikari
    Ásdís Valdimarsdóttir
  • Efnisskrá
    Michael Tippett: Fantasía um stef eftir Corelli
    William Walton: Víólukonsert
    Ígor Stravinskíj: Eldfuglinn

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica