Nóvember 2009

nóvember 2009

(Sleppa dagatali)
S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M
1 2 3 4 5
fimmtudagur
6
föstudagur
7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19
fimmtudagur
20 21 22 23 24 25 26
fimmtudagur
27 28 29 30

Tónleikar
stravinsky_stor

Heyrðu mig nú!

Þótt hið hefðbundna tónleikaform standi ávallt fyrir sínu er hollt og gott að breyta til og reyna aðrar leiðir til að gefa hlustendum innsýn í heim sígildrar tónlistar. Á tónleikum undir merkinu Heyrðu mig nú! er tónlistin kynnt á nýstárlegan og aðgengilegan hátt.

Tónleikarnir eru á föstudagskvöldum og hefjast kl. 21.00 og áður en verkið er flutt í heild er tónlistin kynnt með tóndæmum og léttu spjalli.

Tónleikarnir eru um klukkutími og ekki er gert hlé en að þeim loknum er slegið upp eftirpartýi í anddyri Háskólabíós þar sem gestir fá tækifæri til að spjalla við meðlimi sveitarinnar, stjórnanda og einleikara um tónlistina eða hvaðeina sem brennur á þeim.

Í vetur er það Eldfuglinn eftir Ígor Stravinskíj sem verður kynntur á Heyrðu mig nú! tónleikum 6. nóvember. Stravinskíj klæðir gamalt rússneskt ævintýri í magnaðan hljómsveitarbúning með miklum andstæðum, þar sem trylltir og ofsafengnir dansar hljóma í bland við ljúfsárar vögguvísur.

Miðaverði á þessa tónleika er haldið í algjöru lágmarki og er aðeins 1.500 kr.

  • Stjórnandi
    Rumon Gamba
  • Efnisskrá
    Ígor Stravinskíj: Eldfuglinn

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica