Desember 2009

desember 2009

(Sleppa dagatali)
Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3
fimmtudagur
4 5 6 7 8 9 10 11
föstudagur
12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31

Tónleikar
ingibjorg_stor
  • 11.12.2009 19:30
  • Háskólabíó
  • 3.700 / 3.300 KR.
  • Kaupa miða

Aðventutónleikar

Fátt er betur til þess fallið en hátíðleg tónlist til að koma manni í jólaskap. Á aðventutónleikum SÍ hljómar hátíðleg jólatónlist frá ýmsum tímum í flutningi tveggja af okkar fremstu söngvurum. Bach, Handel, Corelli, Mozart, Adolphe Adam og Sigvaldi Kaldalóns eiga allir sinn skerf á þessari hátíðlegu og jólalegu efnisskrá. Ingibjörg Guðjónsdóttir er ein af fremstu sópransöngkonum landsins og hefur bæði gullfallega rödd og heillandi sviðsframkomu. Hún hefur verið fulltrúi Íslands á tónlistarhátíðum víða um heim og fyrir nokkrum árum kom út hljómdiskur þar sem hún syngur aríur eftir Mozart við undirleik Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Gissur Páll Gissurarson er einn efnilegasti íslenski tenórinn af yngri kynslóðinni. Hann nam í Bologna á Ítalíu og síðan í einkatímum hjá Kristjáni Jóhannssyni. Gissur hefur sungið við fjölmörg óperuhús m.a. á Ítalíu og í Þýskalandi og hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir söng sinn.

Sækja efnisskrá

  • Stjórnandi
    Daníel Bjarnason
  • Einsöngvarar
    Ingibjörg Guðjónsdóttir
    Gissur Páll Gissurarson
  • Efnisskrá
    Hátíðartónlist og vinsæl jólalög: Aríur úr Messíasi Händels og Jólaóratóríu Bachs, Jólakonsertinn eftir Corelli, Maríusöngvar og Ó, helga nótt.

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica