Chopin & Beethoven
Í tilefni þess að 200 ár eru liðin frá fæðingu Chopins leikur Sinfóníuhljómsveit Íslands báða píanókonserta meistarans með ungum íslenskum píanistum. Það er Ástríður Alda Sigurðardóttir sem ríður á vaðið og flytur hinn undurfagra og tregafulla píanókonsert nr. 2, sem raunar var fyrri til að vera saminn þótt talan segi annað. Ástríður Alda lauk námi frá Indiana-tónlistarháskólanum 2003 með hæstu einkunn og hefur síðan komið víða fram og fengið afar góðar undirtektir.
Robert Spano er einn virtasti hljómsveitarstjóri Bandaríkjanna um þessar mundir. Hann hefur gegnt stöðu aðalhljómsveitarstjóra við Sinfóníuhljómsveitina í Atlanta frá árinu 2001 en var einnig meðal þeirra sem voru orðaðir við stöðu aðalstjórnanda hjá Fílharmóníunni í New York nú nýverið. Þá hefur hann hlotið fjölda verðlauna fyrir flutning sinn, meðal annars allnokkurn fjölda Grammy-verðlauna. Spano hefur glæsilegan og þróttmikinn stíl og það er SÍ sannur heiður að bjóða þennan frábæra tónlistarmann til Íslands í fyrsta sinn.
Hetjuhljómkviða Beethovens er sem sniðin að tilþrifamiklum stíl Spanos. Það var með þessu verki sem Beethoven setti mark sitt á sinfóníska formið sem um munaði. Sinfónían er full af spennu og þrótti enda átti hún upphaflega að vera tileinkuð sjálfum Napóleón Bonaparte þótt tónskáldinu snerist hugur þegar ljóst varð að Napóleón yrði ekki sá talsmaður jafnréttis sem margir bundu vonir
-
Stjórnandi
Robert Spano
-
Einleikari
Ástríður Alda Sigurðardóttir
-
Efnisskrá
Ludwig van Beethoven: Coriolan, forleikur
Frédéric Chopin: Píanókonsert nr. 2
Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 3



