Rússnesk meistaraverk
Fyrstu áskriftartónleikar starfsársins eru með rússneskum blæ. Píanókonsert Tsjajkovskíjs nýtur mikilla vinsælda en ekki var honum vel tekið þegar tónskáldið lék hann í fyrsta sinn. Píanósnillingurinn Nikolai Rubinstein jós úr skálum reiði sinnar, sagði að konsertinn væri „óspilandi, einskis virði og svo klaufalega saminn að ekki væri nokkur leið að lagfæra hann; að það væru aðeins tvær eða þrjár síður sem væri hægt að bjarga en hinu yrði ég að farga eða hugsa alveg upp á nýtt.“ Það þarf varla að taka fram að Rubinstein var einn um þessa skoðun enda hefur konsertinn verið eitt ástsælasta verk klassískrar tónlistar í meira en hundrað ár.
Prokofíev samdi hina kraftmiklu fimmtu sinfóníu sína undir lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Hún er ein af hans bestu tónsmíðum og spannar vítt litróf mannlegra tilfinninga: glens, kaldhæðni, dramatík og ljúfsáran trega.
Argentínski píanóleikarinn Sergio Tiempo hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum. Kennari hans, sem er enginn annar en píanógyðjan Martha Argerich, fullyrðir að hann sé einn mesti píanósnillingur ungu kynslóðarinnar í dag. Fyrsti geisladiskur hans kom út þegar hann var fjórtán ára og um nýjasta disk hans með tónlist eftir Ravel og Chopin, sagði einn gagnrýnandi: „Það er hreinasta kraftaverk að hægt sé að leika svona vel á píanó.“
-
Stjórnandi
Rumon Gamba
-
Einleikari
Sergio Tiempo
-
Efnisskrá
Pjotr Tsjajkovskíj: Píanókonsert nr. 1
Sergei Prokofíev: Sinfónía nr. 5



