September 2009

september 2009

(Sleppa dagatali)
Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26
laugardagur
27 28 29 30

Tónleikar
ungsveit_stor
  • 26.9.2009 17:00
  • Háskólabíó
  • 2.200 / 1.100 (fyrir námsmenn)
  • Kaupa miða

Ungsveit SÍ

Fátt er ánægjulegra en að heyra ungt fólk í blóma lífsins stilla saman strengi sína í orðsins fyllstu merkingu og leyfa öllu litrófi tilfinninganna að skína. Nú hefur Sinfóníuhljómsveit Íslands ákveðið að halda námskeið í hljómsveitarleik fyrir tónlistarnema og eru miklar vonir bundnar við að slík námskeið verði fastur liður í starfsemi hljómsveitarinnar. Margoft hefur verið sýnt fram á að tónlistariðkun er sterkt afl í uppeldi og menntun ungs fólks og nokkrar æskulýðshljómsveitir hafa náð heimsfrægð á síðustu misserum, til dæmis Simon Bolivarhljómsveitin í Venesúela undir stjórn Gustavos Dudamel sem og hljómsveit araba og gyðinga sem Daniel Barenboim hefur leitt með miklum myndarbrag. Á fyrstu tónleikum Ungsveitar SÍ verður leikin hin magnþrungna fimmta sinfónía Sjostakovitsj sem er eitt áhrifamesta andóf sem um getur í tónlistarsögu 20. aldarinnar. Hún var samin skömmu eftir að Jósef Stalín hafði lýst yfir vanþóknun sinni á tónlist Sjostakovitsj og ferill hans var í mikilli hættu. Sjálft sagði tónskáldið um lokataktana þar sem slagverkið dynur af fullum þunga: „Það er eins og einhver berji þig með kylfu og segi: „Þú átt að fagna, þú átt að fagna“ og þú stendur skjálfandi á fætur og gengur burt muldrandi „Ég á að fagna, ég á að fagna“. Hvers konar sigur er það?“

Sækja efnisskrá

  • Stjórnandi
    Rumon Gamba
  • Hljómsveit
    Ungsveit SÍ
  • Efnisskrá
    Dimítríj Sjostakovitsj: Sinfónía nr. 5

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica