Upphafstónleikar - Ashkenazy feðgar
Það er ávallt stórviðburður í íslensku tónlistarlífi þegar Vladimir Ashkenazy stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands. Það er ekki síður gleðiefni að einleikari á upphafstónleikum SÍ skuli vera Vovka sonur hans, sem hefur getið sér frábært orð fyrir píanóleik sinn víða um heim.
Þetta er í fyrsta sinn sem þeir feðgar koma fram saman með Sinfóníuhljómsveit Íslands og vel við hæfi að þeir skuli flytja hina stórkostlegu Wanderer-fantasíu Schuberts í útsetningu Liszts þar sem bæði einleikari og hljómsveit njóta sín til fulls.
Það er ekki síður ánægjuefni að Ashkenazy, sem er heimsþekktur fyrir túlkun sína á tónlist Tsjajkovskíjs, skuli stjórna Manfreðsinfóníunni. Líkt og í verki Schuberts er hér byggt á rómantíska minninu um ferðalanginn. Manfreð byggir á ljóði eftir Byron lávarð um ungan mann sem ráfar um Alpana kvalinn af sorg og iðrun.
Tónskáldið sagði þetta vera sitt besta verk og meðal hljómsveitarstjóra sem tekið hafa í sama streng eru Arturo Toscanini og Ashkenazy sjálfur, sem stjórnaði því einmitt í það eina skipti sem það hefur hljómað á Íslandi fram að þessu, árið 1974.
-
Stjórnandi
Vladimir Ashkenazy
-
Einleikari
Vovka Stefán Ashkenazy
-
Efnisskrá
Franz Schubert/ Liszt: Wanderer-fantasían
Pjotr Tsjajkovskíj: Manfreð-sinfónían



