Ungir einleikarar
Sigurvegarar úr einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitarinnar og Listaháskóla Íslands koma fram á þessum tónleikum sem alla jafna eru einhverjir þeir skemmtilegustu á árinu. Það er sannkallað gleðiefni hversu margir efnilegir tónlistarmenn leynast í skólum landsins og ávallt stór stund þegar nokkrir þeirra fá að stíga á svið með hljómsveitinni. Á þessum tónleikum ríkir ávallt sérstök spenna, eftirvænting og stolt yfir þeim mikla mannauði sem íslensk þjóð býr yfir.
Samkeppnin fór fram í Háskólabíói 2. og 3. nóvember. Alls tóku ellefu nemendur þátt og dómnefnd úrskurðaði tvo þeirra hæfa til að koma fram á tónleikum með SÍ. Þeir eru: Helga Svala Sigurðardóttir, flautuleikari og Matthías Sigurðsson, klarínettuleikari. Bæði eru þau nemendur við Tónlistarskólann í Reykjavík.
Því er ljóst að á tónleikunum munu hljóma flautukonsert eftir Jacques Ibert og klarínettukonsert nr. 2 eftir Carl Maria von Weber.
Dómnefndina skipuðu: Karólína Eiríksdóttir (formaður), Rumon Gamba, Kolbeinn Bjarnason, Ólöf Kolbrún Harðardóttir, Anna Guðný Guðmundsdóttir og Bryndís Halla Gylfadóttir.
Sinfóníuhljómsveit Íslands óskar báðum þessum nemendum til hamingju með árangurinn og hlakkar til samstarfsins.
-
Stjórnandi
Bernharður Wilkinson
-
Einleikarar
Matthías Sigurðsson
Helga Svala Sigurðardóttir -
Efnisskrá
Hafdís Bjarnadóttir: Þórdísarhyrna
Carl Maria von Weber: Klarinettukonsert nr.2
Anna S. Þorvaldsdóttir: Dreaming flow
J.Ibert: Flautukonsert



