20. aldar klassík
Fáir ungir tónlistarmenn hafa verið jafn hlaðnir lofi á undanförnum árum og hin tuttugu og eins árs gamla Lise de la Salle. Hún sameinar tæknilega kunnáttu og djúpa ástríðu á einstakan hátt í flutningi sínum og þar sem hún heldur að jafnaði aðeins 20 tónleika á ári er það stórviðburður í hvert sinn sem hún kemur fram. Á Íslandi leikur hún ekki aðeins einn konsert heldur tvo, sem báðir eru meðal helstu meistaraverka konsertformsins á 20. öld.
Ilan Volkov var um árabil aðstoðarmaður Seijis Ozawa við Sinfóníuhljómsveitina í Boston en tók síðan við stöðu BBC-hljómsveitarinnar í Skotlandi. Hann hefur einstakt vald á tónlistinni og þykir hafa einstaka hæfileika til að laða fram galdurinn í tónlist 20. aldarinnar.
Auk píanókonsertanna hljómar á tónleikunum magnþrungin sinfónía Stravinskíjs sem ekki hefur heyrst á Íslandi svo áratugum skiptir.
Munið Vinafélagskynninguna í Neskirkju
Súpa og spjall Árna Heimis Ingólfssonar um verkin á tónleikunum á Kaffitorginu í Neskirkju kl. 18. Allir velkomnir.
-
Stjórnandi
Ilan Volkov
-
Einleikari
Lise de la Salle
-
Efnisskrá
Bent Sørensen: Exit Music
Sergei Prokofíev: Píanókonsert nr. 1
Maurice Ravel: Píanókonsert í G-dúr
Igor Stravinskíj: Sinfónía í þremur þáttum



