Sögusinfónían + 3
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Myrkum músíkdögum fimmtudagskvöldið 28. janúar verður flutt Sögusinfónían eftir Jón Leifs, ein merkasta tónsmíð Jóns og lykilverk í íslenskri tónlistarsögu.
Verkið er fyrsta íslenska sinfónían, samin í Þýskalandi árin 1941-42, og hver þáttur lýsir persónu úr Íslendingasögunum: Skarphéðinn Njálsson, Guðrún Ósvífursdóttir, Björn að baki Kára, Grettir og Glámur, Þormóður Kolbrúnarskáld.
Innblásturinn hlaut Jón eftir tónleika þar sem hann hafði stjórnað Fílharmóníuhljómsveit Berlínar í orgelkonserti sínum vorið 1941. Þar gerðust þau tíðindi að meirihluti áheyrenda gekk á dyr og lá við áflogum vegna hinnar ómstríðu tónlistar sem var mjög á skjön við það sem tíðkaðist í ríki Hitlers.
Sögusinfónían var síðast flutt á Íslandi árið 1995 og var þá hljóðrituð fyrir sænsku BIS-útgáfuna. Sú útgáfa fékk prýðilega dóma hjá gagnrýnendum víða um heim og fyrsta upplag seldist upp á augabragði. Flutningurinn nú er í tilefni þess að á síðasta ári voru 110 ár liðin frá fæðingu Jóns Leifs.
Í tilefni flutningsins hafa þrjú íslensk tónskáld samið stutt hljómsveitarverk sem með einhverjum hætti kallast á við tónlist og efnistök Jóns í Sögusinfóníunni og verða þau einnig flutt á tónleikunum.
Hlynur Aðils Vilmarsson er yngsta tónskáldið í hópnum og á verkið 48K, sem er eins konar hylling til hins kraftmikla og harðgerða stíls sem einkennir tónlist Jóns Leifs.
Eftir Hjálmar H. Ragnarsson er flutt verkið Yfir heiðan morgun, fyrir einleiksselló og hljómsveit.
Í verkinu Orustan við Vínu lýsir Hróðmar Sigurbjörnsson því þegar Egill Skallagrímsson og Þórólfur bróðir hans leggja Aðalsteini Englandskonungi lið í bardaga gegn Ólafi rauða konungi Skotlands.
Örn Magnússon leikur einleik í verkinu, sem er píanókonsert þar sem einleikarinn er látinn túlka Egil sjálfan. Bryndís Halla Gylfadóttir leikur einleik í verki Hjálmars, en stjórnandi á tónleikunum er Franck Ollu, sem hefur getið sér afar gott orð fyrir túlkun sína á nýrri tónlist.
-
Stjórnandi
Franck Ollu
-
Efnisskrá
Jón Leifs:
Sögusinfónían
Hjálmar H. Ragnarsson:
Yfir heiðan morgun
Hróðmar I. Sigurbjörnsson:
Orustan við Vínu
Hlynur Aðils Vilmarsson:
48K



