Janúar 2010

janúar 2010

(Sleppa dagatali)
F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S
1 2 3 4 5 6 7
fimmtudagur
8
föstudagur
9
laugardagur
10 11 12 13 14
fimmtudagur
15 16 17 18 19 20 21
fimmtudagur
22 23 24 25 26 27 28
fimmtudagur
29 30 31

Tónleikar
finnur_stor
  • 7.1.2010 19:30
  • Háskólabíó
  • 4.400 / 4.100 KR.
  • 8.1.2010 19:30
  • Háskólabíó
  • 4.400 / 4.100 KR.
  • 9.1.2010 17:00
  • Háskólabíó
  • 4.400 / 4.100 KR.

Vínartónleikar

Vínartónleikar Sinfóníunnar eru ávallt einstök upplifun enda hafa þeir um árabil slegið öllum öðrum tónleikum sveitarinnar við í vinsældum. Efnisskráin er ólík á hverju ári en uppbyggingin er ávallt sú sama og í þetta sinn er þar að finna fjölmarga gullmola, meðal annars Dónárvalsinn sem allir þekkja. Á hverju ári eru líka tekin nokkur aukalög og endað á Radetzky-marsinum víðfræga við taktfast klapp áheyrenda.

Finnur Bjarnason hefur lengi verið meðal okkar fremstu tenórsöngvara og hefur m.a. verið fastráðinn við Komische Oper í Berlín, sungið á Glyndebourne-hátíðinni í Englandi og hlaut mikið lof fyrir söng sinn í Brottnáminu úr kvennabúrinu í Íslensku óperunni.

Þóra Einarsdóttir stundaði söngnám við Söngskólann í Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur og við Guildhall School of Music and Drama hjá Prof. Lauru Sarti. Þóra þreytti frumraun sína að námi loknu við Glyndebourne Festival Opera árið 1995. Hún steig þó fyrst á svið Íslensku óperunnar aðeins 18 ára gömul í litlum hlutverkum í Rigoletto og í Töfraflautunni.

Þóra söng hlutverk Önnu Frank í óperunni Dagbók Önnu Frank eftir Grigori Frid í Íslensku óperunni á Listahátíð 2008 og í óperu Sunleif Rasmussen Í óðsmannsgarði á listahátíð 2009. Framundan eru m.a gestasamningar við óperuhús í Genf, London og í Austurríki.


Sækja efnisskrá

  • Stjórnandi
    Christopher Warren-Green
  • Einsöngvarar
    Þóra Einarsdóttir
    Finnur Bjarnason
  • Efnisskrá
    Vínartónlist: Johann Strauss yngri, Franz Lehár og fleiri

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica