| M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6
laugardagur
|
7 | 8 | 9 | 10 | 11
fimmtudagur
|
12
föstudagur
|
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18
fimmtudagur
|
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25
fimmtudagur
|
26
föstudagur
|
27 | 28 |
Öllum krökkum finnst gaman að fara í dýragarðinn og nú breytum við Háskólabíói í einn slíkan. Örn Árnason leiðir okkur í gegnum töfraheim dýranna, fyrst með völdum köflum úr hinu bráðskemmtilega Karnvali dýranna eftir Saint-Saëns.
Lesa meira Kaupa miða
Líklega hefur ekkert klassískt verk frá 20.öld notið þvílíkra vinsælda og Carmina Burana eftir Carl Orff. Nafnið kemur úr handriti sem hefur að geyma trúar-, ástar- og drykkjusöngva frá 12. og 13. öld. Orff samdi hið magnaða verk sitt árið 1936 og það hefur haldið nafni hans á lofti æ síðan.
Lesa meira Kaupa miða
Í áranna rás hafa fjölmörg tónskáld ferðast frá Evrópu til Bandaríkjanna og dvalið þar um lengri eða skemmri tíma. Dvorák sigldi til New York til að taka við skólastjórastöðu en Bartók og Stravinskíj til að flýja ógnarstjórn nasista á fjórða áratug 20. aldar. Verkin á þessari efnisskrá eiga það sameiginlegt að vera öll samin í Vesturheimi en þó eru þau eins ólík og hugsast getur.
Lesa meira Kaupa miða
Nokkrum dögum fyrir 200 ára afmæli Chopins heldur SÍ afmælisveislu sem verður lengi í minnum höfð. Það er óþarfi að kynna Víking Heiðar Ólafsson fyrir íslenskum tónleikagestum enda hefur hann löngum spilað sig inn í hug og hjörtu landsmanna með einlægri og glæsilegri túlkun sinni.
Lesa meira Kaupa miða