Febrúar 2010

febrúar 2010

(Sleppa dagatali)
M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11
fimmtudagur
12
föstudagur
13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28

Tónleikar
tucker_stor
  • 11.2.2010 19:30
  • Háskólabíó
  • 3.700 / 3.300 KR.
  • 12.2.2010 19:30
  • Háskólabíó
  • 3.700 / 3.300 KR.
  • Kaupa miða

Carmina Burana

Líklega hefur ekkert klassískt verk frá 20.öld notið þvílíkra vinsælda og Carmina Burana eftir Carl Orff. Nafnið kemur úr handriti sem hefur að geyma trúar-, ástar- og drykkjusöngva frá 12. og 13. öld. Orff samdi hið magnaða verk sitt árið 1936 og það hefur haldið nafni hans á lofti æ síðan. Í upphafskaflanum, O Fortuna, er sungið um gæfuhjólið sem snýst í sífellu og breytir stöðu manna á örskotsstundu.

Tónlistin hefur hljómað víða og meðal annars verið notuð í kvikmyndum, auglýsingum og tölvuleikjum og sama má segja um fjölmarga aðra þætti þessa stórkostlega verks.

Hin verkin á efnisskránni eru sömuleiðis vinsæl meðal almennings um allan heim. Dansar Borodins eru dæmi um eitthvað sem allir þekkja þótt þeir geti ekki endilega nefnt verkið eða höfundinn; einn dansinn varð síðar að laginu Stranger in Paradise og þeir sem hafa leikið Playstation-leikinn The Sword of Etheria ættu sömuleiðis að kannast við ýmislegt.

Bolero eftir Ravel er enn eitt sívinsælt hljómsveitarverkið og dæmi um hvernig er hægt að nota öll hljóðfæri hljómsveitarinnar á sérlega hugvitssamlegan hátt.

Sækja efnisskrá

  • Stjórnandi
    Rumon Gamba
  • Einsöngvarar
    Hallveig Rúnarsdóttir
    Mark Tucker
    Jón Svavar Jósefsson
  • Kór
    Óperukórinn undir stjórn Garðars Cortes
  • Efnisskrá
    Maurice Ravel: Bolero
    Alexander Borodin: Dansar frá Polovetsíu
    Carl Orff: Carmina Burana

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica