Gul tónleikaröð
Tónar úr nýja heiminum
Í áranna rás hafa fjölmörg tónskáld ferðast frá Evrópu til Bandaríkjanna og dvalið þar um lengri eða skemmri tíma. Dvorák sigldi til New York til að taka við skólastjórastöðu en Bartók og Stravinskíj til að flýja ógnarstjórn nasista á fjórða áratug 20. aldar. Verkin á þessari efnisskrá eiga það sameiginlegt að vera öll samin í Vesturheimi en þó eru þau eins ólík og hugsast getur.
Rússneska scherzóið eftir Stravinskíj er lítið skemmtistykki sem upphaflega var hugsað sem kvikmyndatónlist en fékk óvænt annað hlutverk. Sellókonsert Dvoráks er sá vinsælasti sem saminn hefur verið fyrir hljóðfærið, fullur af ástríðu og trega. Konsert fyrir hljómsveit eftir Béla Bartók er eitt glæsilegasta verk sinnar tegundar og tímamótaverk í tónlistarsögunni, þar sem hver einasti hljóðfærahópur hljómsveitarinnar fær að láta ljós sitt skína.
Af öllum þeim fjölda kvenna sem hafa lagt fyrir sig hljómsveitarstjórn á undanförnum áratugum er Susanna Mälkki líklega sú sem mestrar virðingar nýtur á heimsvísu. Hún hefur stjórnað Berlínarfílharmóníunni og Concertgebouw-hljómsveitinni í Amsterdam og er aðalstjórnandi Ensemble Intercontemporain í París.
Sæunn Þorsteinsdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir leik sinn að undanförnu og kemur nú í fyrsta sinn fram sem einleikari með SÍ. Hún lauk nýverið meistaragráðu frá Juilliard og vann til verðlauna í hinni virtu Naumburg-sellókeppni í New York. Gagnrýnandi New York Times hrósaði henni sérstaklega fyrir töfrandi leik sinn og víst er að margir bíða spenntir eftir að heyra hana leika hinn tilfinningaþrungna konsert Dvoráks.
-
Stjórnandi
Susanna Mälkki
-
Einleikari
Sæunn Þorsteinsdóttir
-
Efnisskrá
Ígor Stravinskíj: Scherzo a la Russe
Antonín Dvorák: Sellókonsert
Béla Bartók: Konsert fyrir hljómsveit
-
„Af hverju sagði mér enginn að það væri hægt að semja svona sellókonsert?“ Johannes Brahms um konsert Dvoráks


