Rauð tónleikaröð
Víkingur spilar Chopin
Nokkrum dögum fyrir 200 ára afmæli Chopins heldur SÍ afmælisveislu sem verður lengi í minnum höfð.
Það er óþarfi að kynna Víking Heiðar Ólafsson fyrir íslenskum tónleikagestum enda hefur hann löngum spilað sig inn í hug og hjörtu landsmanna með einlægri og glæsilegri túlkun sinni. Hann frumflutti píanókonsert Daníels Bjarnasonar með hljómsveitinni á síðasta starfsári og fögnuðurinn í lokin var slíkur að húsið lék á reiðiskjálfi.
Hann leikur nú fyrri píanókonsert Chopins í fyrsta sinn á tónleikum og á eflaust eftir að snerta marga strengi í hjörtum áheyrenda með leik sínum.
Sjöunda sinfónía Antons Bruckners er ekki síst kunn fyrir ægifagran hægan þátt sem tónskáldið samdi í minningu Richard Wagners. Sinfóníur Bruckners eru voldugar og þykja oft minna á dómkirkjur í tónum og svo er einnig hér.
Hljómur Sinfóníuhljómsveitar Íslands fær svo sannarlega notið sín í hinum mögnuðu tónahvelfingum austurríska meistarans og þeir sem hafa gaman af rómantískri hljómsveitartónlist ættu ekki að missa af þessari einstöku tónsmíð.
Finnski hljómsveitarstjórinn Pietari Inkinen er aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Nýja-Sjálands og aðalgestastjórnandi Fílharmóníuhljómsveitarinnar í Japan. Hann þykir sérlega áhugaverður stjórnandi og hefur þegar stjórnað fjölda alþjóðlegra hljómsveita, m.a. Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig, Staatskapelle Dresden, Fílharmóníuhljómsveit BBC og Fílharmóníuhljómsveitinni í Ísrael.
Munið Vinafélagskynninguna í Neskirkju
Súpa og spjall Árna Heimis Ingólfssonar um verkin á tónleikunum á Kaffitorginu í Neskirkju kl. 18. Allir velkomnir.
-
Stjórnandi
Pietari Inkinen
-
Einleikari
Víkingur Heiðar Ólafsson
-
Efnisskrá
Frédéric Chopin: Píanókonsert nr. 1
Anton Bruckner: Sinfónía nr. 7
-
„Þar sem orðunum sleppir tekur tónlistin við.“ Heinrich Heine


