Febrúar 2010

febrúar 2010

(Sleppa dagatali)
M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11
fimmtudagur
12
föstudagur
13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28

Tónleikar
orn_arna_stor

Heimsókn í dýragarðinn

Öllum krökkum finnst gaman að fara í dýragarðinn og nú breytum við Háskólabíói í einn slíkan. Örn Árnason leiðir okkur í gegnum töfraheim dýranna, fyrst með völdum köflum úr hinu bráðskemmtilega Karnvali dýranna eftir Saint-Saëns. Þar sjáum við meðal annars svaninn fagra, skjaldbökur og fiskabúr.

Fíllinn Babar lendir líka í ýmsum ævintýrum og tónlistin er bæði litrík og skemmtileg. Sagan segir að eitt sinn hafi Poulenc setið djúpt sokkinn við að semja nútímaverk við flygilinn þegar þriggja ára frænka hans sem var í heimsókn skellti ævintýrabókinni um Babar í fang hans og sagði: „Spilaðu þetta frekar!“ Frændinn tók hana á orðinu og afraksturinn var þetta sívinsæla tónlistarævintýri.

Sækja efnisskrá

Allir krakkar eru beðnir að koma í dýrabúningum eða með uppáhalds dýrið sitt á tónleikana!

Miðaverð 1.700 kr.

  • Stjórnandi
    Daníel Bjarnason
  • Sögumaður
    Örn Árnason
  • Efnisskrá
    Camille Saint-Saëns: Karnival dýranna
    Francis Poulenc: Sagan af fílnum Babar

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica