| M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4
fimmtudagur
|
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18
fimmtudagur
|
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25
fimmtudagur
|
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Þótt Hilary Hahn sé ung að árum hefur hún verið meðal fremstu fiðluleikara heims í meira en áratug. Hún lauk námi við Curtistónlistarháskólann 16 ára gömul og var þá þegar farin að koma fram með hljómsveitum austan hafs og vestan. Hún er á föstum samningi hjá Deutsche Grammophon, hlaut Grammy-verðlaunin í flokki einleikskonserta á síðasta ári auk þess sem Gramophone valdi hana tónlistarmann ársins.
Lesa meira Kaupa miða
Í mars 2010 eru liðin sextíu ár frá því að Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt sína fyrstu tónleika í Austurbæjarbíói. Af því tilefni verða haldnir sérstakir hátíðartónleikar og flutt hin stórfenglega sinfónía nr. 2, „Upprisusinfónían“ svonefnda eftir Gustav Mahler.
Lesa meira Kaupa miða
Það eru nærri þrjátíu ár síðan kór úr Menntaskólanum við Hamrahlíð tók þátt í fyrsta heildarflutningi á Dafnis og Klói á Íslandi, með SÍ undir stjórn Jean-Pierre Jacquillat. Tónleikarnir gengu eins og í sögu, hljómsveit og kór var hrósað í hástert og samdóma álit manna að sjaldan hefði heyrst annað eins á tónleikum á Íslandi.
Lesa meira Kaupa miða