Viðburðir

mars 2010

(Sleppa dagatali)
M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25
fimmtudagur
26 27 28 29 30 31        

Ýmsir tónleikar

  • fimmtudagur, 18. mars 2010, kl. 19.30
  • Háskólabíó
  • 3.700 / 3.300 KR.

60 ára afmælistónleikar SÍ

Í mars 2010 eru liðin sextíu ár frá því að Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt sína fyrstu tónleika í Austurbæjarbíói. Af því tilefni verða haldnir sérstakir hátíðartónleikar og flutt hin stórfenglega sinfónía nr. 2, „Upprisusinfónían“ svonefnda eftir Gustav Mahler. Sinfónían var frumflutt 1895 og er samin fyrir risavaxna hljómsveit, stóran kór og tvo einsöngvara. Hún hefst á jarðarfararmarsi en lýkur með glæsilegum lokakór sem tónskáldið lýsti á þessa leið: „Sjá, það er enginn dómur á hinsta degi, engir syndarar, engin refsing, heldur yfirþyrmandi ást sem fyllir okkur af gleði og þekkingu og lýsir upp tilveru okkar.“ Í tilefni afmælisins munu tvær heimsfrægar söngkonur taka þátt í flutningi þessa stórkostlega tónverks. Finnska sópransöngkonan Hillevi Martinpelto öðlaðist heimsfrægð þegar Deutsche Grammophon valdi hana til að syngja á móti Bryn Terfel í Brúðkaupi Fígarós og Sarah Connolly er einn fremsti mezzósópran Breta. Hún hefur haldið tónleika í Carnegie Hall, sungið á Scala, í Covent Garden og Metropolitan-óperunni og það er mikið gleðiefni að hún skuli nú syngja á Íslandi í fyrsta sinn. Á tónleikunum verður auk þess frumflutt á Íslandi tónverkið Norðurdjúp eftir Hafliða Hallgrímsson, staðartónskáld SÍ. Hafliði er eitt fremsta tónskáld Íslands og hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir list sína. Það er Sinfóníuhljómsveit Íslands sérstakt ánægjuefni og heiður að flytja þetta nýja hljómsveitarverk þar sem hugur hans leitar á heimaslóðir í norðri.

  • Stjórnandi
    Rumon Gamba
  • Einsöngvarar
    Sarah Connolly
    Hillevi Martinpelto
  • Kór
    Mótettukór Hallgrímskirkju
    Hörður Áskelsson kórstjóri
  • Efnisskrá
    Hafliði Hallgrímsson: Norðurdjúp (frumflutningur á Íslandi)
    Gustav Mahler: Sinfónía nr. 2
  • „Sinfónía þarf að vera eins og heimurinn. Hún þarf að innihalda allt.“ Gustav Mahler

Senda



Aðalstyrktaraðilar

Borgun Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica