Viðburðir

mars 2010

(Sleppa dagatali)
M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25
fimmtudagur
26 27 28 29 30 31        

Gul tónleikaröð

  • fimmtudagur, 25. mars 2010, kl. 19.30
  • Háskólabíó
  • 3.700 / 3.300 KR.

Dafnis og Klói

Það eru nærri þrjátíu ár síðan kór úr Menntaskólanum við Hamrahlíð tók þátt í fyrsta heildarflutningi á Dafnis og Klói á Íslandi, með SÍ undir stjórn Jean-Pierre Jacquillat. Tónleikarnir gengu eins og í sögu, hljómsveit og kór var hrósað í hástert og samdóma álit manna að sjaldan hefði heyrst annað eins á tónleikum á Íslandi. Í kjölfarið var stofnaður kór eldri nemenda við MH, Hamrahlíðarkórinn, og síðan hefur hann borið hróður Íslands um allan heim. Það er sérstakt ánægjuefni að nú skuli hinn stórkostlegi ballett Ravels aftur heyrast í fullri lengd, með æskubjörtum hljómnum sem hefur verið aðalsmerki kóranna í Hamrahlíð allt frá upphafi.

Í tilefni páskanna verður einnig leikin hin ægifagra Mathis der Maler-sinfónía sem Paul Hindemith samdi upp úr samnefndri óperu sinni árið 1934. Söguhetjan er þýski málarinn Matthias Grünewald, sem meðal annars gerði meistaralega altaristöfluna í Isenheim sem Hindemith lýsir í verki sínu. Hvorki sinfónían né óperan féllu yfirvöldum í geð í Þýskalandi árið 1934, nasistar lögðu hart að stjórnandanum Wilhelm Furtwängler að aflýsa flutningnum og að endingu flýði tónskáldið land undan ógnarstjórninni.

Munið Vinafélgaskynninguna!

Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur og tónlistarstjóri SÍ heldur fræðandi og skemmtilegan fyrirlestur um verkin á tónleikunum á súpufundi sem haldin er á Kaffitorginu í Safnaðarheimili Neskirkju kl. 18.00 á tónleikadag. 
Aðgangur er ókeypis - allir velkomnir.
Þeir sem vilja geta keypt ljúffenga súpu á aðeins 1.500 krónur.

Sækja efnisskrá

 

  • Stjórnandi
    Eva Ollikainen
  • Kór
    Hamrahlíðarkórarnir undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur
  • Efnisskrá
    Paul Hindemith: Mathis der Maler-sinfónía
    Maurice Ravel: Dafnis og Klói
  • „Tvennt er eftirsóknarverðast í lífinu: Góð tónlist og hrein samviska.“ Paul Hindemith

Senda



Aðalstyrktaraðilar

Borgun Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica