Gul tónleikaröð
Hilary spilar Prokofíev
Þótt Hilary Hahn sé ung að árum hefur hún verið meðal fremstu fiðluleikara heims í meira en áratug. Hún lauk námi við Curtistónlistarháskólann 16 ára gömul og var þá þegar farin að koma fram með hljómsveitum austan hafs og vestan. Hún er á föstum samningi hjá Deutsche Grammophon, hlaut Grammy-verðlaunin í flokki einleikskonserta á síðasta ári auk þess sem Gramophone valdi hana tónlistarmann ársins. Þá kom hún fram á hátíðartónleikum í Vatíkaninu í tilefni áttræðisafmælis Benedikts XVI páfa.
Á þessum tónleikum blása ferskir og ungir vindar. Schubert var ekki nema nítján ára þegar hann samdi fimmtu sinfóníu sína og Prokofíev á þrítugsaldri þegar hann lauk við fyrri fiðlukonsert sinn. Mozart var rétt rúmlega þrítugur þegar hann lauk við síðustu sinfóníur sínar í Vínarborg sumarið 1788, í miklum fjárkröggum og örvæntingarfullur um framtíðina. Margt í verki hans vísar fram á veginn og minnir á Töfraflautuna sem hann samdi þremur árum síðar en Schubert og Prokofíev líta fremur um öxl og eru „nýklassískir“ í besta skilningi þess orðs.
-
Stjórnandi
Benjamin Shwartz
-
Einleikari
Hilary Hahn
-
Efnisskrá
W.A. Mozart: Sinfónía nr. 39
Sergei Prokofíev: Fiðlukonsert nr. 1
Franz Schubert: Sinfónía nr. 5
-
„Enginn fiðluleikari í dag laðar fram jafn yndislegan tón úr hljóðfærinu.“ Rob Cowan (Gramophone) um Hilary Hahn


