Viðburðir

apríl 2010

(Sleppa dagatali)
F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30          

Tónleikar

föstudagur, 9.apríl 2010, Kl. 19.30 Langholtskirkja Tónleikar til heiðurs Jóni Nordal

Jón Nordal er tvímælalaust eitt virtasta tónskáld Íslendinga og nýverið hlaut hann heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar um áratuga skeið. Á tónleikum honum til heiðurs í Langholtskirkju 9. apríl mun Sinfóníuhljómsveitin leika eitt af dáðustu verkum hans, Adagio frá árinu 1966,
sem markaði vatnaskil á ferli Jóns. Eftir áralanga þögn var þetta fyrsta verkið sem hann samdi í þeim persónulega og íhugula stíl sem hefur einkennt verk hans allar götur síðan.

Kaupa miða Meira
  • Stjórnandi
    Andrew Massey
  • Efnisskrá
    Atli Heimir Sveinsson: Pilsaþytur
    Gerald Shapiro: Toccata
    Jón Nordal: Adagio
    Þorkell Sigurbjörnsson: Filigree
    Þórður Magnússon: Námur

laugardagur, 17.apríl 2010, Kl. 14.00 Háskólabíó Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann

Í sögunni Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann kynnist Maxí börnum sem leika á alls kyns hljóðfæri. Í hverju horni tónlistarskólans er verið að æfa og börnin eru öll afar spennt og kát því að þau eiga að fá að koma fram með stóru sinfóníuhljómsveitinni.

Kaupa miða Meira
  • Stjórnandi
    Daníel Bjarnason
  • Sögumaður
    Valur Freyr Einarsson
  • Efnisskrá
    Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann

laugardagur, 17.apríl 2010, Kl. 17.00 Háskólabíó Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann

Í sögunni Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann kynnist Maxí börnum sem leika á alls kyns hljóðfæri. Í hverju horni tónlistarskólans er verið að æfa og börnin eru öll afar spennt og kát því að þau eiga að fá að koma fram með stóru sinfóníuhljómsveitinni.

Kaupa miða Meira
  • Stjórnandi
    Daníel Bjarnason
  • Sögumaður
    Valur Freyr Einarsson
  • Efnisskrá
    Maxímús Músíkús trítlar í tónlistarskólann

föstudagur, 23.apríl 2010, Kl. 19.30 Langholtskirkja Árstíðirnar fjórar í Langholtskirkju

Það er leitun að tónverki sem nýtur meiri hylli en yndislegur óður Antonios Vivaldi til náttúrunnar og lífsins, Árstíðirnar fjórar. Argentínski tangósnillingurinn Astor Piazzolla var svo innblásinn af Árstíðum Vivaldis að hann samdi sínar eigin.

Kaupa miða Meira
  • Stjórnandi
    Wolfram Christ
  • Einleikari
    Elfa Rún Kristinsdóttir
  • Efnisskrá
    Antonio Vivaldi: Árstíðirnar fjórar
    Astor Piazzolla: Árstíðirnar fjórar í Buenos Aires

laugardagur, 24.apríl 2010, Kl. 17.00 Langholtskirkja Árstíðirnar fjórar í Langholtskirkju

Það er leitun að tónverki sem nýtur meiri hylli en yndislegur óður Antonios Vivaldi til náttúrunnar og lífsins, Árstíðirnar fjórar. Argentínski tangósnillingurinn Astor Piazzolla var svo innblásinn af Árstíðum Vivaldis að hann samdi sínar eigin.

Kaupa miða Meira
  • Stjórnandi
    Wolfram Christ
  • Einleikari
    Elfa Rún Kristinsdóttir
  • Efnisskrá
    Antonio Vivaldi: Árstíðirnar fjórar
    Astor Piazzolla: Árstíðirnar fjórar í Buenos Aires

fimmtudagur, 29.apríl 2010, Kl. 19.30 Háskólabíó Rússnesk rómantík

Kalevi Aho er eitt af fremstu nútímatónskáldum Finna. Verk hans eru yfirleitt stór í sniðum og einkennast af dramatík og sálrænni spennu, með greinilegum áhrifum frá Mahler og Sjostakovitsj.

Kaupa miða Meira
  • Stjórnandi
    Rumon Gamba
  • Efnisskrá
    Módest Músorgskíj: Khovanschina, forleikur
    Alexander Borodin: Dansar frá Polovetsíu
    Pjotr Tsjajkovskíj: Sinfónía nr. 4

Aðalstyrktaraðilar

Borgun Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica