Apríl 2010

apríl 2010

(Sleppa dagatali)
F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29
fimmtudagur
30

Tónleikar
rumon_stor
  • 29.4.2010 19:30
  • Háskólabíó
  • 3.700 / 3.300 KR.
  • Kaupa miða

Rússnesk rómantík

Sænski klarínettusnillingurinn Martin Fröst átti að leika einleik í klarínettukonsert Kalevi Aho. Nú er ljóst að ekki verður af því þar sem hann komst ekki í til landsins í tæka tíð vegna öskufallsins.

Í stað klarinettukonsertsins leikur hljómsveitin Dansa frá Polovetsíu eftir Borodin.

Fjórða sinfónía Tsjajkovskíjs er ein sú dramatískasta sem hann samdi enda lýsir hann eigin sálarkvölum í verkinu. Þegar ungur nemandi Tsjajkovskíjs, Antonína að nafni, játaði ást sína á hinum staðfasta piparsveini fannst honum hann ekki eiga annarra kosta völ en að ganga að eiga hana.

Hjónabandið var hreinasta martröð og entist í heilar tvær vikur; sagan segir að eitt kvöldið hafi Tsjajkovskíj staðið svo klukkutímum skipti í ánni Moskvu, staðráðinn í að drepa sig úr kulda.

Það var í aðdraganda þessara átakanlegu atburða sem Tsjajkofskíj samdi „örlagasinfóníu“ sína, sem lætur engan ósnortinn.

Tónlist Alexanders Borodin (1833–1887) heyrist ekki oft á Vesturlöndum en á sinni tíð var hann eitt merkasta tónskáld Rússlands og naut mikillar virðingar. Hann lærði tónlist frá unga aldri en tók doktorspróf í efnafræði og stundaði rannsóknir jafnhliða tónsmíðunum.

Hann samdi í frístundum og samdi fjölda verka, meðal annars þrjár sinfóníur, tvo strengjakvartetta og óperuna Ígor prins. Hann hóf að vinna að henni árið 1869 og var enn með hana í smíðum þegar hann lést 18 árum síðar.

Þá höfðu dansarnir úr öðrum þætti þegar verið fluttir opinberlega og aðeins átti eftir að ljúka við þann þriðja; Nikolai Rimskíj-Korsakoff og Alexander Glasúnoff tóku það hlutverk að sér og Ígor prins var fluttur í fyrsta sinn 1890.

 

Sækja efnisskrá

  • Stjórnandi
    Rumon Gamba
  • Efnisskrá
    Módest Músorgskíj: Khovanschina, forleikur
    Alexander Borodin: Dansar frá Polovetsíu
    Pjotr Tsjajkovskíj: Sinfónía nr. 4

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica