Apríl 2010

apríl 2010

(Sleppa dagatali)
F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29
fimmtudagur
30

Tónleikar
nordal_stor

Tónleikar til heiðurs Jóni Nordal

Jón Nordal er tvímælalaust eitt virtasta tónskáld Íslendinga og nýverið hlaut hann heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar um áratuga skeið. Á tónleikum honum til heiðurs í Langholtskirkju 9. apríl mun Sinfóníuhljómsveitin leika eitt af dáðustu verkum hans, Adagio frá árinu 1966,
sem markaði vatnaskil á ferli Jóns. Eftir áralanga þögn var þetta fyrsta verkið sem hann samdi í þeim persónulega og íhugula stíl sem hefur einkennt verk hans allar götur síðan.

Auk Adagio verða leikin á tónleikunum verk annarra tónskálda fyrir sömu hljóðfærasamsetningu sem á vissan hátt kallast á við meistarasmíð Jóns: Pilsaþytur eftir Atla Heimi Sveinsson, Filigree eftir Þorkel Sigurbjörnsson, og tvö ný verk: Námur eftir Þórð Magnússon og Toccata eftir Gerald Shapiro.

Hljómsveitarstjóri er Andrew Massey.

Þessir tónleikar eru kærkomið tækifæri til að heiðra einn af okkar merkustu tónlistarmönnum og heyra tónlist hans í samhengi þeirra verka sem á eftir hafa komið.

A.T.H. Miðar á þessa tónleika eru ekki númeraðir.

 

Sækja efnisskrá

  • Stjórnandi
    Andrew Massey
  • Efnisskrá
    Atli Heimir Sveinsson: Pilsaþytur
    Gerald Shapiro: Toccata
    Jón Nordal: Adagio
    Þorkell Sigurbjörnsson: Filigree
    Þórður Magnússon: Námur

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica