Schumann & Brahms II
Er mögulegt að semja heila sinfóníu á fjórum dögum? Það afrekaði Robert Schumann í janúar 1841 þegar hann var á hátindi ferils síns. Einkalífið blómstraði, hann hafði fengið að kvænast sinni heittelskuðu Clöru eftir áralangt stríð við tengdaföður sinn og nú logaði „sinfónískur eldur“ í brjósti hans, eins og hann orðaði það sjálfur. Vorsinfónían er líka sú glaðværasta og vinsælasta af fjórum sinfóníum Schumanns og sannkallaður gleðigjafi á íslensku vorkvöldi.
Rúmum áratug síðar var allt farið á versta veg, Schumann þjáðist af þunglyndi og reyndi að binda enda á líf sitt með því að fleygja sér í ána Rín. Aðeins nokkrum dögum síðar festi vinur hans Johannes Brahms á blað tilfinningaþrungið stef sem síðar varð upphafið að fyrsta píanókonserti hans. Brahms var rétt rúmlega tvítugur en strax búinn að ná tökum á stóru formunum eins og þetta stórfenglega meistaraverk ber með sér. Að heyra það í flutningi hins margverðlaunaða kanadíska píanóleikara Jon Kimura Parker er sannkallað tilhlökkunarefni.
Norski hljómsveitarstjórinn Arild Remmereit nam píanóleik, söng og tónsmíðar við Tónlistarháskólann í Ósló, en lærði hljómsveitarstjórn hjá Karl Österreicher við Tónlistarháskólann í Vínarborg á árunum 1987-92. Hann var aðstoðarmaður Leonards Bernstein um nokkurra ára skeið og hóf feril sinn sem stjórnandi Wiener Residenz Orchester og við Úkraínsku þjóðaróperuna.
Remmereit hefur stjórnað fjölda hljómsveita og fengið lofsamlegar viðtökur áheyrenda jafnt sem gagnrýnenda. Meðal þeirra sveita sem hann hefur stýrt má nefna sinfóníuhljómsveitinar í Baltimore, Dallas, Detroit, Pittsburgh og Vínarborg, Fílharmóníuhljómsveitirnar í München og Tókýó, Þýsku sinfóníuhljómsveitina í Berlín, Mozarteum-hljómsveitina í Salzburg og La Scala í Mílanó.
Remmereit hefur oft hlaupið í skarðið fyrir aðra stjórnendur á síðustu stundu, eins og hann gerir með Sinfóníuhljómsveit Íslands nú þar sem Andrew Litton þurfti að breyta ferðaáætlun sinni vegna tónleikaferðar um Ástralíu.
Munið Vinafélgaskynninguna!
Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur og tónlistarstjóri SÍ heldur fræðandi og skemmtilegan fyrirlestur um verkin á tónleikunum á súpufundi sem haldin er á Kaffitorginu í Safnaðarheimili Neskirkju kl. 18.00 á tónleikadag -6. maí.
Aðgangur er ókeypis - allir velkomnir.
Þeir sem vilja geta keypt ljúffenga súpu á aðeins 1.500 krónur.
-
Stjórnandi
Arild Remmereit
-
Einleikari
Jon Kimura Parker
-
Efnisskrá
Johannes Brahms: Píanókonsert nr. 1
Robert Schumann: Sinfónía nr. 1



