Varla hefur nokkur íslenskur óperusöngvari náð jafn langt í sínu fagi og Kristinn Sigmundsson, sem er fastagestur í virtustu óperuhúsum heims og fær hvarvetna mikið lof fyrir flutning sinn. Skemmst er að minnast þess þegar hann söng hlutverk Ochs baróns í Rósariddaranum við Metropolitan-óperuna í beinni útsendingu um allan heim, meðal annars á Íslandi.
Nú heldur Kristinn sína fyrstu einsöngstónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands um langt árabil og má fullyrða að eftirvæntingin sé mikil. Á efnisskrá tónleikanna hefur Kristinn sjálfur valið nokkrar af sínum eftirlætis aríum, meðal annars úr Rakaranum í Sevilla, Don Carlo og Hollendingnum fljúgandi.
Lesa meira Kaupa miða
Rumon Gamba hefur gegnt stöðu aðalhljómsveitarstjóra SÍ í átta ár en nú skilur leiðir og hann tekur við fastri stöðu við Norrbotten Opera í Svíþjóð á komandi hausti. Rumon kaus að láta efnisskrá kveðjutónleikana endurspegla áherslur sínar í starfinu og valdi verk eftir enskt, íslenskt og rússneskt tónskáld.
Lesa meira Kaupa miða
Þetta er í fyrsta sinn sem Hjaltalín leikur með Sinfóníuhljómsveitinni og eru liðsmenn hennar nú í óða önn að útsetja lögin fyrir stóra sinfóníuhljómsveit með öllu tilheyrandi. Stjórnandi verður Daníel Bjarnason. Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveitin munu leika lög af plötum sveitarinnar, Terminal og Sleepdrunk Seasons, en einnig verður frumflutt nýtt efni sem Hjaltalín hefur samið sérstaklega fyrir þessa tónleika.
Lesa meira Kaupa miða