Júní 2010

júní 2010

(Sleppa dagatali)
Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
fimmtudagur
11 12 13 14 15 16
miðvikudagur
17 18
föstudagur
19
laugardagur
20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Tónleikar
rumon_stor
  • 10.6.2010 19:30
  • Háskólabíó
  • 3.700 / 3.300 KR.
  • Kaupa miða

Rumon kveður

Rumon Gamba hefur gegnt stöðu aðalhljómsveitarstjóra SÍ í átta ár en nú skilur leiðir og hann tekur við fastri stöðu við Norrbotten Opera í Svíþjóð á komandi hausti. Rumon kaus að láta efnisskrá kveðjutónleikana endurspegla áherslur sínar í starfinu og valdi verk eftir enskt, íslenskt og rússneskt tónskáld.

Hugljúft strengjaverk Elgars er upptaktur að nýju verki fyrir sópran og hljómsveit eftir Áskel Másson, þar sem Diddú fer á kostum í glaðværri vorstemningu við sonnettur Gunnars Gunnarssonar.

Rumons verður eflaust helst minnst fyrir það afrek sitt að stjórna öllum sinfóníum Sjostakovitsj á fjögurra ára tímabili og nú hljómar sú tíunda aftur í magnþrunginni túlkun hans. Sjostakovitsj samdi hana sumarið 1953, skömmu eftir lát Jósefs Stalín sem oft hafði horn í síðu hans.

Tíunda sinfónían er á köflum innhverf og hæglát en annars staðar brýst fram kaldhæðni og jafnvel heift sem er aðdáendum tónskáldsins að góðu kunn. Enda sagði Sjostakovitsj að hún væri um Stalíntímann og að brjálæðislegur annar þátturinn væri „mynd af Stalín í tónum“.

  • Stjórnandi
    Rumon Gamba
  • Einsöngvari
    Sigrún Hjálmtýsdóttir
  • Efnisskrá
    Edward Elgar: Inngangur og Allegro
    Áskell Másson: Söngvar um vorið
    Dimítríj Sjostakovitsj: Sinfónía nr. 10

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica