Júní 2010

júní 2010

(Sleppa dagatali)
Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
fimmtudagur
11 12 13 14 15 16
miðvikudagur
17 18
föstudagur
19
laugardagur
20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Tónleikar
hjaltalin_stor
  • 16.6.2010 20:00
  • Háskólabíó
  • 3.900 kr.
  • 18.6.2010 20:00
  • Háskólabíó
  • 3.900 kr.
  • 19.6.2010 20:00
  • Háskólabíó
  • 3.900 kr.
  • Kaupa miða

Hjaltalín og Sinfó

Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveit Íslands leiða saman hesta sína á stórtónleikum í Háskólabíói  16.  18. og 19. júní kl. 20:00.  

Þetta er í fyrsta sinn sem Hjaltalín leikur með Sinfóníuhljómsveitinni og eru liðsmenn hennar nú í óða önn að útsetja lögin fyrir stóra sinfóníuhljómsveit með öllu tilheyrandi.  Útsetningarnar gera þeir Högni og Hrafnkell Egilssynir og Viktor Orri Árnason, en stjórnandi á tónleikunum verður Daníel Bjarnason. Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveitin munu leika lög af plötum sveitarinnar, Terminal og Sleepdrunk Seasons,  en einnig verður frumflutt nýtt efni sem Hjaltalín hefur samið sérstaklega fyrir þessa tónleika.


Hljómsveitin Hjaltalín er einstök í sinni röð og  hljómur sveitarinnar algjörlega sér á báti. Hljómsveitin hefur notið mikilla vinsælda að undanförnu og hlaut nýverið Íslensku tónlistarverðlaunin.


Hjaltalín hefur mikið unnið með sinfóníska tóna í tónlist sinni og notað sinfónískar hljómsveitir í upptökum og á tónleikum.  En nú verður þetta tekið alla leið og mun fullskipuð Sinfóníuhljómsveit Íslands leika með þeim og verða því hátt í 100 manns sem stíga á svið í Háskólabíó og flytja magnaða tónlist Hjaltalín. Óhætt er að lofa kraftmiklum og litríkum tónleikum.


  • Stjórnandi
    Daníel Bjarnason
  • Efnisskrá
    Lög af Sleepdrunk Seasons og Terminal ásamt frumsömdu efni Hjaltalín fyrir þetta tilefni.

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica