Óperuveisla Kristins Sigmundssonar - Tónleikar á Listahátíð
Varla hefur nokkur íslenskur óperusöngvari náð jafn langt í sínu fagi og Kristinn Sigmundsson, sem er fastagestur í virtustu óperuhúsum heims og fær hvarvetna mikið lof fyrir flutning sinn. Skemmst er að minnast þess þegar hann söng hlutverk Ochs baróns í Rósariddaranum við Metropolitan-óperuna í beinni útsendingu um allan heim, meðal annars á Íslandi.
Nú heldur Kristinn sína fyrstu einsöngstónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands um langt árabil og má fullyrða að eftirvæntingin sé mikil. Á efnisskrá tónleikanna hefur Kristinn sjálfur valið nokkrar af sínum eftirlætis aríum, meðal annars úr Rakaranum í Sevilla, Don Carlo og Hollendingnum fljúgandi.
Sinfóníuhljómsveitin leikur einnig valin hljómsveitarverk undir stjórn Petri Sakari, fyrrum aðalstjórnanda SÍ, og Óperukórinn í Reykjavík syngur, en hann vakti mikla hrifningu tónleikagesta í febrúar sl. þegar hann söng Carmina Burana með SÍ við tvöfaldan húsfylli í Háskólabíói.
Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Listahátíðar í Reykjavík og fara fram í Háskólabíói laugardaginn 5. júní kl. 17.
-
Stjórnandi
Petri Sakari
-
Einsöngvarar
Kristinn Sigmundsson
-
Kór
Óperukórinn í Reykjavík
Garðar Cortes -
Efnisskrá
Aríur, kórar og forleikir eftir Rossini (Rakarinn í Sevilla), Beethoven (Fidelio), Tsjajkovskíj (Evgéníj Onégin), Verdi (Don Carlo) og Wagner (Hollendingurinn fljúgandi, Tannhäuser).



