September 2010

september 2010

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
föstudagur
11 12 13 14 15 16
fimmtudagur
17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Tónleikar

vikingur_listi

Sinfóníudagurinn / Opið hús 4.9.2010 14:00 Háskólabíó

Laugardaginn 4. september kl. 14.00 býður Sinfóníuhljómsveitin gestum og gangandi í opið hús í Háskólabíói þar sem skemmtilegir atburðir verða á dagskrá og efnisskrá vetrarins kynnt. Starfsfólk Sinfóníunnar mun jafnframt veita áhugasömum ráðgjöf og aðstoð við að velja sér áskriftarleiðir eða raða saman skemmtilegum og spennandi Regnbogakortum. Miðasalan verður opin og hægt er að kaupa áskrift eða staka miða. Boðið verður upp á kaffi og með því. Ekki láta þessa skemmtilegu uppákomu fram hjá þér fara.

Ókeypis inn og allir velkomnir.

Lesa meira
 
volkov_listi

Upphafstónleikar 10.9.2010 19:30 Háskólabíó

Árið 2011 verður því fagnað um víða veröld að 200 ár eru liðin frá fæðingu Franz Liszts. Af þessu tilefni leikur Víkingur Heiðar Ólafsson eitt af öndvegisverkum hans fyrir píanó og hljómsveit, hádramatískan dauðadans þar sem ekkert er gefið eftir í glímunni við kölska. Víkingur flytur einnig hina ástsælu Paganinirapsódíu Rakmaninoffs, þar sem tónskáldið umbreytir einföldu stefi fiðlusnillingsins á töfrandi hátt. Litrík balletttónlist Stravinskíjs við Eldfuglinn setur endapunktinn aftan við þessa fjörugu og fjölbreyttu efnisskrá.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Ivan Volkov
  • Einleikari
    Víkingur Heiðar Ólafsson
  • Efnisskrá
    György Ligeti: Rúmenskur konsert
    Franz Liszt: Mefistó-vals nr. 1 og Totentanz
    Sergei Rakmaninoff: Rapsódía um stef eftir Paganini
    Ígor Stravinskíj: Eldfuglinn, svíta
 
bell_listi

Mahler og Strauss 16.9.2010 19:30 Háskólabíó

Söngvarnir sem Richard Strauss samdi ári fyrir dauða sinn eru einhverjir þeir fegurstu sem settir hafa verið á blað, enda urðu þeir strax sígildir í bestu merkingu orðsins. Hér fléttar tónskáldið saman söng og hljóðfæra leik með áhrifamiklum hætti. Tónlistin hefur enda hljómað víða um heim og verið notuð í kvikmyndir, meðal annars í Óskarsverðlaunamyndina The Hours.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Lionel Bringuier
  • Einleikari
    Emma Bell
  • Efnisskrá
    Richard Strauss: Fjórir síðustu söngvar
    Gustav M ahler: Sinfónía nr. 1
 
faust_listi

Faust spilar Stravinskíj 23.9.2010 19:30 Háskólabíó

Frakkland er í forgrunni á þessum tónleikum þótt tónskáldin komi víða að. Ravel samdi hina ægifögru hyllingu til barokkmeistarans Couperin meðan fyrri heimsstyrjöldin geisaði, og tileinkaði hvern þátt minningu vina sinna sem höfðu látið lífið á vígvellinnum. Rúmum áratug síðar var Stravinskíj búsettur í París og samdi þar hinn frábæra fiðlukonsert sinn fyrir virtúósann Samuel Dushkin.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Pietari Inkinen
  • Einleikari
    Isabelle Faust
  • Efnisskrá
    Maurice Ravel: Tombeau de Couperin
    Ígor Stravinskíj: Fiðlukonsert
    Antonín Dvorák: Sinfónía nr. 7
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica