September 2010

september 2010

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
föstudagur
11 12 13 14 15 16
fimmtudagur
17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Tónleikar
volkov_stor
Mynd 1 af 2
1 2
  • 10.9.2010 19:30
  • Háskólabíó
  • 3.900 kr. / 3.400 kr.
  • Kaupa miða

Upphafstónleikar

Árið 2011 verður því fagnað um víða veröld að 200 ár eru liðin frá fæðingu Franz Liszts. Af þessu tilefni leikur Víkingur Heiðar Ólafsson eitt af öndvegisverkum hans fyrir píanó og hljómsveit, hádramatískan dauðadans þar sem ekkert er gefið eftir í glímunni við kölska. Víkingur flytur einnig hina ástsælu Paganinirapsódíu Rakmaninoffs, þar sem tónskáldið umbreytir einföldu stefi fiðlusnillingsins á töfrandi hátt. Litrík balletttónlist Stravinskíjs við Eldfuglinn setur endapunktinn aftan við þessa fjörugu og fjölbreyttu efnisskrá.

Á upphafstónleikunum gefst tónlistarunnendum færi á að heyra og sjá hinn frábæra stjórnanda Ilan Volkov munda sprotann. Volkov hlaut Gramophone-verðlaunin árin 2008 og 2009 og hlaut frábærar viðtökur á Proms-tónlistarhátíðinni 2009, enda má með sanni segja að hann sé á hátindi ferils síns um þessar mundir.

Sama má raunar segja um Víking Heiðar, sem var tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2009 fyrir listsköpun sína og hefur á undanförnum árum komið fram með nokkrum fremstu tónlistarmönnum heims, meðal annars Martin Fröst og flautuleikaranum Denis Bouriakov, en þeir munu halda tónleika í Carnegie Hall í desember næstkomandi.

Upphafstónleikar SÍ eru því tilvalið tækifæri til að sjá skærustu píanóstjörnu Íslands í eðalformi.

  • Stjórnandi
    Ivan Volkov
  • Einleikari
    Víkingur Heiðar Ólafsson
  • Efnisskrá
    György Ligeti: Rúmenskur konsert
    Franz Liszt: Mefistó-vals nr. 1 og Totentanz
    Sergei Rakmaninoff: Rapsódía um stef eftir Paganini
    Ígor Stravinskíj: Eldfuglinn, svíta

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica