September 2010

september 2010

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
föstudagur
11 12 13 14 15 16
fimmtudagur
17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Tónleikar
bell_stor
  • 16.9.2010 19:30
  • Háskólabíó
  • 3.900 kr. / 3.400 kr.
  • Kaupa miða

Mahler og Strauss

Söngvarnir sem Richard Strauss samdi ári fyrir dauða sinn eru einhverjir þeir fegurstu sem settir hafa verið á blað, enda urðu þeir strax sígildir í bestu merkingu orðsins. Hér fléttar tónskáldið saman söng og hljóðfæra leik með áhrifamiklum hætti. Tónlistin hefur enda hljómað víða um heim og verið notuð í kvikmyndir, meðal annars í Óskarsverðlaunamyndina The Hours.

Á því leikur enginn vafi að Gustav Mahler var eitt merkasta sinfóníuskáld allra tíma. Í meðförum hans varð sinfónían risavaxinn heimur þar sem ólíkir heimar mætast. Fyrsta sinfónía hans er magnþrungið tónverk þar sem risastór sinfóníuhljómsveit fer á kostum, með kraftmiklum lúðraþyt í bland við ljúfa sveitadansa, auk þess sem Meistari Jakob skýtur upp kollinum þegar síst skyldi.

Lionel Bringuier var aðeins nítján ára þegar hann hreppti fyrstu verðlaun í Besançonhljómsveitarstjórakeppninni árið 2005. Nú er hann orðinn einn eftirsóttasti ungi stjórnandi heims og hefur meðal annars stýrt fílharmóníuhljómsveitunum í New York og Los Angeles. Hann debúteraði á Mostly Mozarthátíðinni í júlí 2010 og það verður spennandi að sjá hvernig stórbrotin sinfónía Mahlers hljómar í meðförum hans.

Emma Bell er ein glæsilegasta sópransöngkona Bretlands um þessar mundir og hefur sungið við Metropolitan, Covent Garden og Glyndebourne-óperuhúsin við frábærar undirtektir. Hún fékk standandi lófatak að launum þegar hún kom fram með sinfóníunni í júní 2009 og nú snýr þessi hrífandi listakona aftur og flytur eitt af meistaverkum sinfónískrar söngtónlistar.

 

  • Stjórnandi
    Lionel Bringuier
  • Einleikari
    Emma Bell
  • Efnisskrá
    Richard Strauss: Fjórir síðustu söngvar
    Gustav M ahler: Sinfónía nr. 1

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica