September 2010

september 2010

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
föstudagur
11 12 13 14 15 16
fimmtudagur
17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Tónleikar
faust_stor
  • 23.9.2010 19:30
  • Háskólabíó
  • 3.900 kr. / 3.400 kr.
  • Kaupa miða

Faust spilar Stravinskíj

Frakkland er í forgrunni á þessum tónleikum þótt tónskáldin komi víða að. Ravel samdi hina ægifögru hyllingu til barokkmeistarans Couperin meðan fyrri heimsstyrjöldin geisaði, og tileinkaði hvern þátt minningu vina sinna sem höfðu látið lífið á vígvellinnum. Rúmum áratug síðar var Stravinskíj búsettur í París og samdi þar hinn frábæra fiðlukonsert sinn fyrir virtúósann Samuel Dushkin.

Sjöunda sinfónía Antoníns Dvoráks þykir ein hans allra besta, en hefur ekki heyrst hér á landi um langt skeið. Hann samdi verkið eftir að hafa hrifist af þriðju sinfóníu vinar síns og velgjörðarmanns, Johannesar Brahms, og árangurinn lét ekki á sér standa. Í verkinu sagðist Dvorák hafa reynt að lýsa baráttu tékknesku þjóðarinnar, en í hæga kaflanum syrgir hann einnig dóttur sína sem þá var nýlátin. Tónlistin er áhrifamikil og dramatísk, en um verkið sagði tónskáldið meðal annars: „Það sem ég hafði í huga var ástin, Guð, og föðurlandið.“ 

Isabelle Faust er einn eftirtektarverðasti fiðluleikari heims í dag og hljómdiskar hennar hjá Harmonia Mundi hafa sópað til sín viðurkenningum undanfarin ár. Í fyrra kom hún m.a. fram með Berlínarfílharmóníunni og á Proms-hátíðinni í Lundúnum, auk þess sem Gramophone valdi hljóðritun hennar á partítum Bachs disk mánaðarins. Faust leikur á svonefndan Þyrnirósar-Stradivarius frá árinu 1704, sem þykir ein besta fiðla ítalska meistarans.

Finnski hljómsveitarstjórinn Pietari Inkinen vakti gríðarlega hrifningu hljóðfæraleikara og tónleikagesta þegar hann stjórnaði SÍ í febrúar 2010 og var honum samstundis boðið að koma aftur til Íslands við fyrsta tækifæri. Hann hleypur nú í skarðið fyrir Yan Pascal Tortelier, sem varð að aflýsa komu sinni af óviðráðanlegum orsökum. 

Inkinen var skipaður aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Nýja Sjálands árið 2008 og hefur hlotið einróma lof fyrir tónleikaferðir sínar með hljómsveitinni, sem og fyrir hljóðritanir þeirra hjá Naxos-útgáfunni. Í nóvember 2010 heldur hann með sveitina í tónleikaferð um Evrópu þar sem m.a. verður leikið í Vínarborg, Luzern, Genf, Frankfurt og Hamborg ásamt bandarísku fiðlustjörnunni Hilary Hahn.

 

  • Stjórnandi
    Pietari Inkinen
  • Einleikari
    Isabelle Faust
  • Efnisskrá
    Maurice Ravel: Tombeau de Couperin
    Ígor Stravinskíj: Fiðlukonsert
    Antonín Dvorák: Sinfónía nr. 7

Senda



Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica