Ungir einleikarar
Sigurvegarar úr einleikarakeppni Sinfóníuhljómsveitarinnar og Listaháskóla Íslands koma fram á þessum tónleikum sem alla jafna eru einhverjir þeir skemmtilegustu á árinu. Það er sannkallað gleðiefni hversu margir efnilegir tónlistarmenn leynast í skólum landsins og ávallt stór stund þegar nokkrir þeirra fá að stíga á svið með hljómsveitinni. Á þessum tónleikum ríkir ávallt sérstök spenna, eftirvænting og stolt yfir þeim mikla mannauði sem íslensk þjóð býr yfir.
Þetta eru tónleikar sem áhugamenn um framtíð íslenskrar tónlistar láta sig ekki vanta á.
Námsmenn og ungt fólk fær 50% afslátt af miðaverði í miðsölu okkar í Háskólabíói.
-
Stjórnandi
Bernharður Wilkinson
-
Einleikarar
Birgir Þórisson píanó
Jane Ade Sutarjo píanó
Andri Björn Róbertsson söngur -
Efnisskrá
Gerswin- Rhapsody in Blue
Chopin - Píanókonsert nr. 1
Mozart - Ein Mädchen oder Weibchen og Madamina! Il catalogo
Bellini- Il mulino..Vi,ravviso
Händel- Leave me, loathsome light



