Kvikmyndatónlistarveisla
Kvikmyndatónleikar Sinfóníunnar á síðasta starfsári voru frábærlega sóttir og yfir 400.000 manns hafa séð myndskeið á YouTube þar sem Svarthöfði stjórnar tónlist úr Stjörnustríði. Nú endurtökum við leikinn með tónlist úr öðrum frægum kvikmyndum. Meðal annars verður flutt hljómsveitarsvíta úr Psycho eftir Bernard Herrmann, þættir úr Cinema Paradiso eftir Ennio Morricone og Guðföðurnum eftir Nino Rota. Auk þess verður flutt tónverkið Popcorn Superhet Receiver eftir Jonny Greenwood úr Radiohead, sem hefur látið töluvert að sér kveða sem tónskáld á síðustu árum. Þetta tónverk hljómaði í Óskarsverðlaunamyndinni There Will Be Blood frá árinu 2007.
Bandaríski hljómsveitarstjórinn Benjamin Shwartz vakti fyrst verulega athygli þegar hann komst á verðlaunapall í Gustav Mahler hljómsveitarstjórakeppninni árið 2007, og hefur nú nýlokið þriggja ára samningi sem aðstoðarstjórnandi við Sinfóníuhljómsveitina í San Francisco. Hann stjórnaði SÍ í fyrsta sinn í mars 2009 í efnisskrá með verkum eftir George Gershwin og Leonard Bernstein, og snýr nú aftur með spennandi kvikmyndatónlist í farteskinu.
-
Stjórnandi
Benjamin Shwartz
-
Efnisskrá
Bernard Herrmann
Ennio Morricone
Nino Rota
Jonny Greenwood



